húsnæðismál.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir góða fyrirspurn. Varðandi áhrif á þenslu og annað slíkt — þetta eru 290 íbúðir á ári miðað við þær forsendur sem settar eru fram í þessu frumvarpi. Í fyrra hlutdeildarlánakerfi var talað um 400–500 íbúðir á ári. Mjög lítill hluti af húsnæðismarkaðnum fer undir hlutdeildarlán, u.þ.b. 2% af honum. Varðandi eftirspurnardrifið eða framboðsdrifið — í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir því að hægt sé að gera samninga við verktaka um að byggja inn í úrræðið. Þeir sem byggja íbúðarhúsnæði geta unnið að því með stjórnvöldum að byggja inn í úrræðið íbúðir sem henta þessum hópi. Þar með erum við að horfa á framboðshliðina.