157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[14:16]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Aftur þakka ég fyrir fyrirspurnina. Þetta er mjög áhugavert. Ég vil nefna tvo þætti í þessu máli. Þegar við erum með félagslegan stuðning við ákveðinn hóp, sem hefur ekki haft aðgang að því að kaupa íbúðir, er það í eðli sínu takmarkandi. Þannig virkar þetta. Við getum ekki gert það öðruvísi.

Varðandi áhrif á hækkun húsnæðisverðs er það þannig að hámarksverð íbúða inni í hlutdeildarlánum er svo „lágt“ og þannig stillt að ekki er talið að það muni hafa áhrif. Í umsögn Seðlabanka Íslands var talað um að hámarksvirði gæti verið mun hærra en segir í reglugerð. Forsendur voru ekki í samræmi við frumvarpið.