157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[14:22]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og ég nefndi í andsvari er hér ekki um félagslegt úrræði að ræða. Við höfum annað kerfi fyrir félagsleg úrræði. Ég er sammála hv. þingmanni um að það þarf auðvitað að vera, eða getur verið jákvætt að liðka fyrir kaupum fyrstu kaupenda og það hefur verið gert með margvíslegum hætti, m.a. með afslætti eða niðurfellingu á stimpilgjöldum og ýmsum öðrum aðgerðum, og það má auðvitað hafa skoðun á því hvort þær aðgerðir séu nægar eða ekki. En allt að einu langar mig, í ljósi þess að þetta frumvarp er — það er verið að breyta kerfinu svolítið í grundvallaratriðum og það kann að vera jákvætt að gera það framboðsdrifið frekar en eftirspurnardrifið. En það kemur hins vegar kannski að einhverjum þolmörkum í því og einhverjir gætu sagt: Hér er verið að dekra við verktakana og etja ungu fólki í það að kaupa nýtt húsnæði vegna þess að það er verið að afnema þá heimild sem hlutdeildarlánakerfið hafði til þess að veita lán til kaupa á eldri íbúðum. Þess vegna spyr ég: Telur hv. þingmaður þetta endilega þjóna ungu (Forseti hringir.) fólki, fyrstu kaupendum, betur heldur en t.d. kerfið sem við höfum í dag?