húsnæðismál.
Frú forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál, hlutdeildarlán, sem við í Framsókn erum einmitt afar stolt af að hafa komið hér á. Okkur finnst miður, í ljósi þess hvernig málið hefur gengið hér í þinginu, í ljósi vankanta á þinglegri meðferð í málinu, að við sjáum okkur ekki fært að styðja þetta mál í dag eins mikið og við hefðum viljað. Ég sit í hv. velferðarnefnd og vil þakka nefndinni fyrir mjög gott samstarf í haust. En umsögn Seðlabankans í þessu máli er sláandi. Þeir slá varnagla við þeim útvíkkunum sem verið er að leggja til. Minnisblaðið frá þeim hafði þau áhrif að meiri hluti nefndarinnar ákvað að leggja fram breytingartillögur nú við 2. umræðu. Við í nefndinni kölluðum eftir því að fá aftur mat Seðlabanka Íslands gagnvart þessum breytingum og fá að heyra þeirra viðhorf en því var hafnað.
Í nefndaráliti meiri hlutans kemur fram að þessar breytingar séu til þess að koma til móts við athugasemdir Seðlabanka Íslands sem meiri hlutinn telur að takmarki áhrif frumvarpsins á húsnæðismarkaðinn og fasteignaverð, sem Seðlabankinn fjallaði svo ótrúlega skýrt um í umsögn sinni til nefndarinnar. Við fengum ekki viðbrögð frá Seðlabankanum, því var hafnað. Okkur skilst að Seðlabankinn sé enn sömu skoðunar og því var líka hafnað að við fengjum mat á áhrifum á eftirspurnina varðandi markaðinn. Mig langar því að spyrja: Hvaða gögn liggja að baki þessari fullyrðingu meiri hlutans?