157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[14:27]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir góða fyrirspurn. Varðandi vinnu nefndarinnar þá er það þannig að okkur brá að sjálfsögðu öllum í brún þegar Seðlabankinn kom með sína umsögn. Við höfðum haft ákveðna sýn á þetta frumvarp og á það hvaða áhrif það myndi hafa. Þegar við áttuðum okkur á því að Seðlabankinn hefði ekki tekið tillit til hámarksverðs íbúða heldur eingöngu reiknað það upp út frá tekjuviðmiðum sáum við að í raun og veru væru þær forsendur sem Seðlabankinn setti sér í sínu mati ekki nákvæmar. Við í meiri hlutanum litum svo á, eftir að fjármálaráðuneytið og félagsmálaráðuneytið höfðu unnið með þessa hluti og farið yfir það og fundað með okkur í nefndinni og rætt þessi mál við okkur, að við hefðum fengið nægilega fullvissu fyrir því að þau atriði sem Seðlabankinn nefndi væru í raun og veru ekki ástæða til að fara í fleiri hringi með málið. Við teljum að það sé gríðarlega mikilvægt að við náum þessu máli inn núna vegna þess að það eru mjög margir sem bíða. Eins og stillingin er á hlutdeildarlánakerfinu núna þá eru mjög fáir sem falla inn í það og við viljum fara að vinna með verktökum sem fyrst til að koma sem flestum í húsnæði á nýju ári.