húsnæðismál.
Virðulegi forseti. Þetta mál er tekið hér til 2. umræðu á síðasta degi þingsins fyrir jólahlé og það er vilji stjórnarmeirihlutans að afgreiða það fyrir jól. Ég geri athugasemdir við það að málið komi til hálfgerðrar flýtiumræðu í dag og verði tekið til 2. umræðu, og væntanlega 3. umræðu á nýjum þingfundi sem verður settur sérstaklega til þess arna síðar í dag og komi síðan til atkvæðagreiðslu. Ég finn að því, en ekki af því að ég telji málið alslæmt í sjálfu sér, alls ekki.
Ég nefndi það við 1. umræðu um málið þegar mælt var fyrir því fyrir nokkrum dögum að það hefði jákvæðan brag á sér, einkum þann að kannski er verið að gera hlutdeildarlánakerfið framboðsdrifið fremur en eftirspurnardrifið. Með þessu frumvarpi er veitt af þessu fé og gerðir samningar við verktaka til að ýta undir það að þeir reisi fleiri byggingar og íbúðir og fjölgi húsnæði af því tagi sem margoft hefur verið nefnt hagkvæmar íbúðir. Við vitum ekki alveg hvað kallast hagkvæmar íbúðir af því að sérstaklega hefur verið fjallað um þetta í hv. velferðarnefnd. Við nefndarmenn höfum verið fullvissaðir um að það sé ekki slegið af neinum kröfum til gæða íbúða og þess háttar. Það eru einmitt ef til vill þær kröfur í byggingarreglugerð sem hafa verið verktökum og kannski húsnæðismarkaðinum fjötur um fót, ýmsar of ítarlegar kröfur og flóknar sem menn hafa kallað eftir að yrðu afnumdar til þess að flýta fyrir uppbyggingu. Það er annað atriði sem er mjög nauðsynlegt að ræða í þessu samhengi. Verið er að gera þetta að framboðsdrifnu kerfi.
Ég nefni það samt með fyrirvara um að ég átti mig ekki á þessu. Kannski er það misskilningur hjá mér að betra sé að hafa það framboðsdrifið en eftirspurnardrifið. Ég hef tilhneigingu til að halda að betra sé að hafa það framboðsdrifið en eftirspurnardrifið. Það kunna að koma fram einhverjir annmarkar á því. Ég efa ekki að ef einhverjir annmarkar koma fram verða menn að bregðast við því í framtíðinni ef þessi mál fara úr böndunum.
Annað atriði sem ég fagnaði er það að gert er ráð fyrir því í frumvarpinu og tekinn af allur vafi um það — sem ég hélt að væri vafalaust en hefur komið á daginn að eru ekki einhver ágreiningsefni — að fyrir liggur að hlutdeildarlán hafa verið veitt fólki sem ekki hefur ótímabundið dvalarleyfi hér á landi. Það er að segja einstaklingum sem hafa tímabundið dvalarleyfi hér en eru sannarlega dvalarleyfisskyldir. Þeir hafa nokkrir haft hugmyndaflug til að sækja um hlutdeildarlán og hafa sótt um lán. Það má taka hatt sinn ofan fyrir einstaklingum sem hafa rænu á því að sækja um í svona flóknu kerfi þrátt fyrir að hafa ekki ótímabundið dvalarleyfi hér. Það er í öllu falli tekið á því og gerð fortakslaus krafa um að umsækjendur um hlutdeildarlán skuli hafa ótímabundið dvalarleyfi ef þeir eru dvalarleyfisskyldir. Ég fagna því.
Við þessa flýtimeðferð málsins í hv. velferðarnefnd, sem ég held að óumdeilt sé að hafi verið, komu nokkrir umsagnaraðilar fyrir nefndina. Hv. þingmaður lýsti ágætlega gestakomum og umsögnum þeirra sem þær veittu. Þegar hefðbundnum gestakomum lauk óskaði minni hlutinn eftir því að fá umsögn Seðlabanka Íslands um þetta mál. Ég verð að segja að eftir á að hyggja var það andvaraleysi, líka minni hlutans, strax í upphafi. Auðvitað áttu félagsmálaráðuneyti og ráðherrann sem lagði þetta fram að vekja athygli á því að Seðlabanki Íslands er umsagnaraðili að einhverju leyti, eða a.m.k. sá ráðherra sem fer með fjármálastöðugleika eða þjóðhagsstöðugleika eða hvað það nú heitir. Það er hæstv. forsætisráðherra, hann er umsagnaraðili um breytingar á reglum í þessu kerfi.
Þótt hv. velferðarnefnd sé ekki vön að kalla til sín gesti frá Seðlabanka Íslands eða senda mál þangað til umsagnar var sérstök ástæða til þess að gera það í þessu máli. Það var ekki gert en minni hlutinn rankaði við sér og gerði það. Seðlabankinn brást vel við og sendi umsögn sem óhjákvæmilega hreyfði við málinu. Fluttar voru fréttir af því að menn hefðu greint það á umsögn Seðlabankans að málið gæti haft áhrif á ákvarðanir peningastefnunefndar bankans í ljósi beitingar stýritækja sem bankinn hefur í svokölluðu þjóðhagsvarúðarskyni og hvað þetta nú allt saman heitir hjá Seðlabankanum.
Þá runnu tvær grímur á þá sem hér stendur. Ekki viljum við hella olíu á þann verðbólgueld sem er í dag eða á ákvarðanir Seðlabanka Íslands í vaxtamálum, sem einhverjir vilja draga þá ályktun af að sé nú í lækkunarferli. Seðlabankinn hækkaði ekki vexti síðast. Við eigum eftir að sjá hvort lækkunarferli er í gangi. Ég skal ekki segja en maður vonar það. Ég held að allir voni að vextir fari lækkandi. Það væri ansi vont að mínu mati ef þingið samþykkti á þessum tímapunkti, með aðvörunarorð Seðlabankans á borðinu, mál sem gætu einhvern veginn truflað það lækkunarferli. Ég tala nú ekki um ef þetta mál yrði notað sem rökstuðningur fyrir því að hækka vexti. Það væri ekki gott.
Seðlabanki Íslands sendi umsögn. Það kom mér á óvart hversu mjög hv. þingmenn meiri hlutans í nefndinni, og í ummælum sínum á opinberum vettvangi, gerðu lítið úr þessari umsögn og töldu hana byggða á misskilningi. Ég man ekki hvort því var haldið fram að þetta væri rangt reiknað hjá Seðlabankanum. Það væri gaman ef því hefði verið haldið fram. Ég skal ekki segja. Ekki er ég í neinni vörn fyrir Seðlabankann. Ég held að hann geti gert mistök eins og aðrir. Ákvarðanir bankans undanfarin ár eru svo sannarlega ekki hafnar yfir vafa.
En þrátt fyrir þennan meinta misskilning af hálfu meiri hluta nefndarmanna stjórnarmeirihlutans, þá liggur fyrir nefndarálit með breytingartillögu sem sögð er koma til móts við Seðlabanka Íslands. Það út af fyrir sig er tilefni til þess að staldra við. Við, aðrir nefndarmenn í hv. velferðarnefnd, höfum ekki haft tök á að ræða aftur við Seðlabankann og meta það hvort nægilega sé komið til móts við hann. Það kann að vera. Ég veit ekki hvort bankinn hefði áhuga á að senda aðra umsögn um þetta mál eða ræða það. Það liggur hins vegar fyrir að þegar Seðlabankinn veitti umsögn sína hafði hann bara fyrir augunum þetta frumvarp. Hann reiknaði út stöðuna, möguleika fólks til að kaupa sér fasteignir og það hversu dýrar þær eru miðað við þau skilyrði sem sett eru í frumvarpinu.
Síðan kemur í ljós — sem sú sem hér stendur vissi ekki því að maður er ekki daglega að véla um þetta kerfi allt saman — að í gildi er reglugerð sem setur hámarksverð á íbúðir sem seldar eru í þessu hlutdeildarlánakerfi. Þar er eitthvert hámark. Seðlabanki Íslands benti á og gerði sérstaka athugasemd við það að lögin veittu þetta mikla svigrúm sem ætti síðan að takmarka í reglugerð sem skylda er reyndar til að endurskoða einu sinni á ári. Það er hægt að endurskoða reglugerðina oftar. Í kjölfarið var kynnt fyrir hv. velferðarnefnd að fyrir lægju drög að nýrri reglugerð í þessu máli þar sem fjárhæðarmörkin væru aðeins hækkuð en fráleitt svo mikið sem Seðlabankinn hafði gert ráð fyrir. Það er að vissu leyti jákvætt að menn horfi þannig á hlutina. Ef það væri þannig að menn gætu treyst því að þessi reglugerð væri áfram, þá væri þar kannski komið til móts við Seðlabankann, get ég ímyndað mér.
Ég vil að öðru leyti segja að það er gott við þessa þinglegu meðferð í fastanefndum þingsins, þegar hún er góð, að menn fá betri innsýn í mál. Þá koma oft fram aðrir og óvæntir agnúar á málum sem tengjast þeim en liggja ekki fyrir þinginu að afgreiða. Þegar maður spáir í þetta húsnæðislánakerfi og það hvernig það er fjármagnað óttast ég að ekki verði sett undir þann leka sem virðist vera í kerfinu. Hann felst í því að Húsnæðissjóður, sem fjármagnar hlutdeildarlán, er fjármagnaður með endurlánum frá ríkissjóði á ákveðnum vöxtum og álagi á þá vexti.
Húsnæðissjóður er vistaður í Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Stofnunin hefur heimild til að lána áfram úr þessum sjóði. Í 4. gr. reglugerðar nr. 830/2021, um starfsemi og fjármögnun Húsnæðissjóðs, kemur fram að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skuli „varðveita og ávaxta á tryggan hátt það fé sem Húsnæðissjóður hefur umsjón með, í þeim tilgangi að tryggja eins góð lánskjör og kostur er og lágmarka áhættu ríkissjóðs af skuldbindingum sjóðsins“. Skuli „skilmálar lánveitinga Húsnæðissjóðs endurspegla skilmála lánveitinga ríkissjóðs til sjóðsins“.
Þetta er mikilvægt atriði. Húsnæðissjóður er fjármagnaður úr ríkissjóði af skattgreiðendum með ákveðnu fé inn í sjóðinn. Hann má ekki lána úr sjóðnum öðruvísi en á sömu kjörum. En það er einmitt markmið hlutdeildarlána að lána á engum vöxtum og engum kjörum. Ég fæ ekki séð að þessar lánveitingar standist þessa reglu. Ég varpaði því fram við ráðuneytið hverju þetta sætti og var upplýst um það að til stæði að setja nýja reglugerð þar sem gerð væri krafa um fast eigið fé þessa sjóðs. Það er ekki búið að setja þá reglugerð og eins og staðan er núna eru hlutdeildarlán fjármögnuð með því að ganga á eigið fé Húsnæðissjóðs.
Þetta hljómar svolítið eins og taka tvö á Íbúðalánasjóðsskandalnum, að vísu á miklu minni skala því að þarna eru þó einhver mörk. Það er ekki bara verið að lána fólki eins og Íbúðalánasjóður gerði, þar sem menn gátu fengið lán eins og þeir vildu, heldur eru hér einhver mörk. En fyrirbærið virðist vera það sama.
Ég var reyndar líka upplýst um það að búið væri að breyta þessari reglu í 4. gr. reglugerðarinnar. Það hefði verið gert í nóvember eða desember, það er óljóst. Sú reglugerðarbreyting hefur ekki verið birt í Stjórnartíðindum og gildir því ekki. Þannig að enn gildir sú regla að sjóðurinn má ekki lána nema á sömu kjörum og hann fær. Ef menn ætla að breyta því, eins og mér er sagt að eigi að gera, þá er verið að ganga á eigið fé sjóðsins, eins og reyndar hefur verið gert. Þá er þessu svarað til þegar ég spyr um þetta: „En sjóðurinn er svo stöndugur, hann á svo mikið eigið fé.“ Það á að ganga í það þar til það er uppurið. Ég veit ekki hversu mörg ár það tekur en það þarf klárlega að fjármagna það inn í sjóðinn.
Í breytingartillögu við 2. umræðu um frumvarp til fjárlaga fyrir nokkrum dögum — í fyrradag eða í gær, þeir renna allir saman þessir dagar núna, í gær held ég — var samþykkt breytingartillaga við frumvarpið þar sem fjárheimild Húsnæðissjóðs var breytt að því leyti að sjóðurinn hefði heimild til að lána 4 milljarða kr. úr sínum sjóði. Það er lánsfjárheimildin, hún þarf að ákvarðast í lögum og það er gert í fjárlögum. Í gær samþykktum við að þessi breyting myndi hækka úr 4 milljörðum kr. í 5,5 milljarða kr. Gott og vel. Eftir sem áður, og það er líka tekið fram í fjárlögum, er óbreyttur sjóður 20 milljarðar kr. Það þýðir, ef ég skil þetta rétt, að verið er að breyta hlutföllum hlutdeildarlána í sjóðnum.
Sjóðurinn hefur tvenns konar hlutverk. Það eru almennar íbúðir, fjárframlög til þeirra, fjárfesting í almennu íbúðakerfi — sem er hið eiginlega félagslega kerfi þótt það heiti því almenna hugtaki almennar íbúðir, en almennar íbúðir eru félagslegar íbúðir. Og svo hlutdeildarlán. Með því að breyta þessum hlutföllum og auka hlutfall hlutdeildarlána er verið að taka af almenna íbúðalánakerfinu. Það er verið að taka úr félagslega kerfinu og setja í hlutdeildarlán. Fyrir mína pólitík gæti það verið jákvætt. Þessi ríkisstjórn og sumir hæstv. ráðherrar hafa nánast gargað og gólað að hér skipti allt máli og ekkert annað en að mæta lægst setta fólkinu. Þetta er gargað og gólað um leið og gefið er á garðann fyrir alla og peningunum dreift á alla. Ég veit það ekki. Ég bara bendi á þetta.
Mér finnst vera einhver brotalöm í þessu kerfi. Það er að segja, ekki brotalöm í kerfinu en mér finnst hins vegar blasa við að það er einhver kerfislægur vandi í kerfinu sem ekki er leystur með þessu frumvarpi. Ef menn ætla að halda áfram með kerfið á þessum nótum komum við einhvern tíma á vegg. Það kunna að vera einhverjir stjórnmálamenn í dag sem hugsa „den tid, den sorg“, eins og Danir segja, með leyfi virðulegs forseta. Það er vandamál einhverra annarra í framtíðinni, eins og menn hugsuðu með Íbúðalánasjóð á sínum tíma. Ég hygg hins vegar að þetta gæti orðið vandamál miklu fyrr í Íbúðalánasjóði af því að eigið fé … Þetta er afmarkaðri vandi og minna fé til ráðstöfunar og því minni hætta á stórum skellum en skellum samt. Ég vil bara flagga þessu. Mig rennir í grun að þetta mál þurfi jafnvel að koma aftur til þingsins með einhvers konar lagabreytingu til að koma þessu hlutdeildarlánakerfi, vilji menn halda því til streitu, á aðeins fastari grunn til framtíðar — og, hvað á maður að segja, ekki málefnalegri grunn heldur lögformlegri og sjálfbærari grunn, vildi ég sagt hafa.
Virðulegi forseti. Í lokin vil ég nefna eitt af því að ég hef sagt að ég fagni því að þetta sé framboðsdrifið. Ég geri athugasemdir við stefnu sem felur í sér að ungu fólki, sem er að kaupa sína fyrstu íbúð, sé att út í að kaupa nýjar íbúðir. Ég held að hvergi í heiminum sé það þannig að ungt fólk horfi almennt til nýbygginga. Nýbyggingar eiga að vera dýrari íbúðir en gamlar íbúðir og kjallaraholur hjá okkur í Vesturbænum eða miðbænum. Mér finnst í raun sorglegt fyrir þetta unga fólk ef það fær ekki að upplifa að búa þröngt í lítilli risíbúð undir súð í miðbænum og láta sig dreyma um ný blöndunartæki, marmara og opið eldhús. Mér finnst það svolítið sorglegt þeirra vegna. Ég geld varhug við þessu.
Ég bendi líka á, eins og landsbyggðin hefur sagt, að þetta kemur illa við ungt fólk sem vill kaupa húsnæði á landsbyggðinni. Hér er verið að taka af þessar eldri íbúðir. Á landsbyggðinni er ekki um þessar nýbyggingar að ræða eins og svo mjög á höfuðborgarsvæðinu.
Virðulegi forseti. Í lokin segi ég að ég leggst ekki fortakslaust gegn þessu máli, alls ekki. En mér finnst, og er búin að margbenda á það, að þetta mál hefði mátt afgreiða í janúar án þess að nokkur (Forseti hringir.) þyrfti að bera skarðan hlut frá borði.