157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[14:52]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að biðjast afsökunar. Ég er framsögumaður málsins en ég var bara ekki nógu fljót að hlaupa frá Smiðju og hingað yfir. Ég þarf greinilega að fara að halda mig við maraþon áfram. En mig langar aðeins að bregðast við ræðu hv. þm. Sigríðar Andersen sem var prýðileg og svo sem bara svipuð því sem við erum búin að heyra hvað varðar tóninn frá þingmanninum, sem mér finnst frekar svartsýnislegur, og það að þetta eigi eftir að þurfa að koma aftur inn og annað slíkt vil ég ekki endilega taka undir.

Ég vil þó sérstaklega nefna hér að það kom umsögn frá Seðlabankanum sem okkur þótti óskaplega vænt um að fá og hún var mjög afgerandi og ekkert okkar vill vera valdur að því að trufla eða valda óstöðugleika í efnahagskerfi landsins eða auka á verðbólgu. Það var strax ákveðið að ráðuneytið og Seðlabankinn myndu eiga fund og ræða þessi mál og út úr því komu tvær ágætisbreytingar sem gerðar voru á frumvarpinu. Mig langar að spyrja: Fannst hv. þingmanni þetta ekki bara gott? Var ekki einmitt verið að sýna að þarna kemur inn umsögn frá Seðlabankanum sem er tekin alvarlega og strax farið í að setjast niður og finna leiðir? Daginn eftir eru komnar breytingartillögur og við fáum ráðuneyti aftur inn í nefndina sem útskýrir þær. Ég satt að segja átti bara dálítið von á að minni hlutinn í nefndinni yrði bara ótrúlega ánægður með þetta og af því að ég veit að í grunninn, eins og fram kom hjá þingmanninum, er þingmaðurinn ekki á móti þessu máli þannig séð, enda er þetta ekkert nýtt mál. Ég var pínu hissa hvað þessi góða niðurstaða fór fyrir brjóstið á minni hlutanum í nefndinni. Miglangar að spyrja: Var ekki einhver smá gleði og ánægja yfir því að þetta skyldi fara á þennan ágæta veg?