húsnæðismál.
Virðulegur forseti. Hv. þingmanni er alveg óhætt að líta á það þannig að minni hlutinn og meiri hlutinn hafi mæst á miðri leið, að því leyti að við fengum umsagnir og málið til umfjöllunar. Ég hef ekkert yfir því að kvarta þótt ég kvarti yfir því að ekki hafi gefist lengri tími. Við erum bara ósammála um að það liggi á þessu máli. Við vorum reyndar upplýst um að verktakar væru að sækja um í þetta kerfi núna síðustu daga. Ég á ekki von á mikilli veltu í umsóknum núna yfir jólamánuðinn. Það er stutt þangað til þing kemur aftur saman þannig að ég segi aftur: Það hefði að ósekju mátt bíða með að velta þessum málum upp, m.a. þessu máli sem hv. þingmaður spyr mig um varðandi eldri íbúðirnar. Ég játa að ég get ekki alveg svarað því hvernig eigi að útfæra hlutdeildarlánakerfið með tilliti til þess, nú þegar búið er að gera það framboðsdrifið og stíla það á verktaka af því að það eru ekki verktakar sem gera upp íbúðir. Öryrkjabandalagið og fleiri bentu á þetta og kölluðu eftir því að þær íbúðir væru líka undir í þessu máli sem er verið að taka í gegn í samræmi við algilda hönnun og þar fram eftir götunum. Þetta er alltaf spurning um tilganginn. Er tilgangurinn að hjálpa ungu fólki að komast inn á húsnæðismarkaðinn? Eða er tilgangurinn að fjölga íbúðum á húsnæðismarkaði? Ef tilgangurinn er sá seinni, að fjölga bara íbúðum á húsnæðismarkaði, af hverju er unga fólkið okkar látið vera einhver tilraunadýr eða eitthvert andlag í þeirri vegferð? Bara unga fólkið okkar. Ef tilgangurinn er að hjálpa ungu fólki að komast inn á húsnæðismarkaðinn þá á það ekki að skipta máli hvort um er að ræða gamla íbúð, rómantíska íbúð undir súð hér í miðbænum, eða íbúð í nýbyggingu uppi í Grafarholti. Það ætti þá ekki að skipta máli.