157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[15:01]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir sína ræðu, hún fór ágætlega yfir þetta mál. Við sitjum saman í velferðarnefnd, í téðum minni hluta, og höfum verið að kalla eftir gögnum í kringum þetta mál. En mig langaði að byrja fyrri fyrirspurn mína á vangaveltum um landsbyggðina og eldra húsnæði. Við vitum það öll sem þekkjum til að tölfræðin sýnir okkur að landsbyggðin hefur því miður ekki getað nýtt sér þetta úrræði nægilega vel heldur hefur meiri hlutinn farið hingað á stórhöfuðborgarsvæðið. Við kynslóðaskipti er eldra fólk oft að selja stórt húsnæði, einbýlishús, á landsbyggðinni sem er einmitt hentugt fyrir ungar og barnmargar fjölskyldur. Nú er verið að taka þann „lapsus“ út þannig að í staðinn fyrir að útvíkka úrræðið til að það nái nægilega vel um allt land er verið að þrengja að þessum svæðum.

Mig langaði að spyrja hv. þingmann aðeins út í þetta, hvað hún telur að hefði verið betra að gera í tengslum við þetta. Hún gagnrýndi það einmitt hér að verið væri að vísa fólki meira í nýtt húsnæði. Það er hægt að færa rök fyrir því á vissum forsendum en við vitum vel að það gildir ekki alveg það sama fyrir höfuðborgarsvæðið, og svæðið hér í kring, og landsbyggðina.