157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[15:02]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég skil vel áhyggjur landsbyggðarinnar í þessu. Það kom skýrt fram í meðferð hv. velferðarnefndar, í umsögnum þeirra um þetta. Vandinn við svona kerfi, þegar menn eru að ofhugsa þjóðfélagið með einhvers konar þjóðfélagsverkfræði að vopni og ætla að búa til kerfi til að hjálpa einhverjum að komast inn á markað — ef það á að vera takmarkað úrræði, þá eru alltaf einhverjir sem enda á jaðrinum og komast ekki inn í þetta kerfi. Það má líka benda á, af því að miðað er við einhverjar tekjur, að menn geti ekki verið með of háar tekjur til að fara inn í kerfið, að þá er spurningin alltaf þessi: Hvað verður um þá sem eru með einni krónu meira í tekjur? Hvað verður um þá sem eru með einni krónu meira í tekjur en reglurnar segja til um, útreikningarnir? Þeir falla milli skips og bryggju. Þetta verður því alltaf óskaplega ósanngjarnt gagnvart fjölda fólks og að þessu leyti líka gagnvart landsbyggðinni. Því hefði kannski mátt bjarga með því að vera ekki með fortakslaust bann við því að eldri íbúðir geti verið inni í þessu kerfi án þess þó að hvika frá því markmiði að þetta eigi bara að vera fyrir þá sem eru sérstaklega tekjulágir. En ég tek undir það að þetta er einmitt spurningin og það er þess vegna sem ég spyr að því sem mér finnst vera grundvallarspurning í þessu öllu saman: Hvert er raunverulegt markmið með þessu? Er markmiðið að fjölga íbúðum eða er markmiðið að hjálpa ungu fólki? Það fer ekkert endilega alveg saman að nota ungt fólk til þess að fjölga íbúðum á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík, eða jafnvel úti á landi. Ungt fólk á, að mínu mati, ekkert að vera í fremstu víglínu í þeirri baráttu.