húsnæðismál.
Virðulegur forseti. Ég skal ekki segja til um hvort öll gögn séu komin í málinu eða ekki. Það er fullt af gögnum komið fram í málinu en það er hins vegar ekki nægilegt að öll gögn í þingmáli séu komin fyrir þingið. Það er ekki nægjanlegt. Þingmenn verða að fá ráðrúm til að kynna sér gögnin, ekki bara í orði, þannig að þau liggi frammi, heldur á borði, þannig að menn fái raunverulegan tíma til að kynna sér gögnin.
Nú liggur fyrir þessi umsögn Seðlabankans sem var sakaður um að misskilja málið og Seðlabankanum var svarað. Hver er ég til þess að fara að meta þessi gögn sem koma frá fjármálaráðuneytinu og félagsmálaráðuneytinu sem líta öll mjög vel út? Þau eru að mínu mati að mörgu leyti trúverðug og þau eru að gera sitt besta til að svara Seðlabankanum. En hver er ég til að meta það ef Seðlabankinn er sakaður um að misskilja málið, misskilja einhverja útreikninga og forsendur í málinu? Ég veit það ekki. Ég hefði a.m.k. fyrir mitt leyti viljað fá að fleyta þessu máli, lokaafgreiðslunni, fram yfir áramót. Ég hef ekki enn þá fengið nein skynsamleg rök í því önnur en þau að verktakar séu að bíða með lífið í lúkunum. En samt er upplýst um það í þessari viku að menn séu að sækja í þetta kerfi. Þetta kerfi hefur kannski verið hálf lamað í einhverja mánuði en núna er eitthvað að lifna við. Menn eru að reyna að fleyta nýjum íbúðum sem ekki seljast inn í þetta kerfi. Vonandi eru menn þá að lækka verðið á þessum íbúðum til þess að þær falli undir þetta hlutdeildarlánakerfi. Það er bara aðallega þetta, að menn fái svör við þessu. Það hefði verið fróðlegt að fá Seðlabankann aftur á fund nefndarinnar til að ræða þau minnisblöð sem hafa verið lögð fram. Ég nefni einnig að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur aldrei verið kölluð fyrir nefndina og engin umsögn hefur borist frá henni. En mér þykir það eiginlega orðið meira spennandi að heyra hvernig rekstur á þeirri stofnun gengur með þennan húsnæðissjóð.