157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[15:09]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Við erum hér að ræða þetta mál, hlutdeildarlánin. Ég vil byrja á því að þakka nefndinni fyrir samstarfið í málinu. Málsmeðferðin var að mörgu leyti mjög óvenjuleg og óheppileg, bara þannig að það sé sagt. Það var mælt fyrir málinu hér föstudagskvöldið 5. desember. Strax á mánudagsmorgni var málið tekið til meðferðar í nefndinni, gestir mættir, fulltrúar frá Viðskiptaráði og Öryrkjabandalaginu, til þess að ræða þetta mál sem mælt hafði verið fyrir á föstudagskvöldinu. Eðlilega hafði þessum aðilum ekki gefist tækifæri til þess að rýna málið og senda umsögn, hún var ekki til, hvað þá heldur að við í nefndinni hefðum fengið tækifæri til þess að kynna okkur afstöðu þessara aðila og spyrja út í efni gagnrýninnar. Þetta verklag sætti bara furðu okkar sem í minni hlutanum erum og bókuðum við athugasemdir við það. Þarna á nefndarfundinum fórum við líka að kynna okkur málið betur, óskuðum eftir því að Seðlabankinn kæmi og gæfi umsögn um málið og það var eitthvað sem meiri hlutinn í nefndinni hafði nú ekki hugsað sér þegar umsagnarbeiðnirnar voru sendar út. Ástæðan fyrir því að við töldum mikilvægt að fá Seðlabankann til þess að gefa álit sitt á málinu er sú að árið 2020, þegar þetta úrræði var innleitt, var óskað eftir umsögn Seðlabankans. Þannig voru vinnubrögðin á þeim tíma. Seðlabankinn var þá tiltölulega jákvæður, sagði að áhrifin yrðu lítil en sagði hins vegar, með leyfi forseta:

„Tekið var fram að þetta væri bundið áformunum eins og þau voru sett fram, þ.e. að hlutdeildarlán yrðu ekki útvíkkuð frá því sem fólst í frumvarpinu. Yrðu einhverjir þættir útvíkkaðir eða rýmkaðir frá því sem frumvarpið kvæði á um, t.d. tekjumörk, hlutfall hlutdeildarlána af kaupverði eða gerð húsnæðis, gæti það haft þau áhrif að Seðlabankinn sæi sig knúinn til þess að grípa til mótvægisaðgerða eins og nánar var lýst í umsögn bankans.“

Þetta segir Seðlabankinn árið 2020. Og við í minni hlutanum hugsum með okkur: Heyrðu, við þurfum að athuga hvað Seðlabankanum finnst þegar það er akkúrat verið að gera þetta, hækka tekjumörkin eða hækka hlutfall hlutdeildarlána af kaupverði, rýmka úrræðið. Við þurfum að vita hvað Seðlabankanum finnst um þetta vegna þess að öll ættum við nú að vera saman í þeirri aðgerð að vinna gegn verðbólgu og lækka vexti hér í landinu, hefði maður haldið. En við óskuðum eftir þessari umsögn Seðlabankans. Það vorum við sem óskuðum eftir því og við óskuðum raunar líka eftir umsögn annarra aðila sem veittu umsagnir þegar málið var fyrst til umfjöllunar hér árið 2020, þar með talið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Umsögn Seðlabankans barst svo 12. desember. Allt var þetta unnið í miklum flýti. Umsagnarfresturinn var í rauninni mjög skammur og fulltrúar Seðlabankans höfðu orð á því á fundi nefndarinnar að þeir teldu það vera andstætt þeim meginreglum sem unnið er eftir í nefndarstarfi í þinginu og það er rétt. En þeir fengu viku umsagnarfrest og skiluðu föstudaginn 12. desember, á síðasta degi. Umsögnin er mjög gagnrýnin á úrræðið, skiljanlega, og þar koma fram þær áhyggjur að það sé þensluhvetjandi. Það skiptir auðvitað mjög miklu máli. Þetta er ekki bara einhver aðili úti í bæ, Seðlabanki Íslands.

Ég get ekki tekið undir það með hv. formanni velferðarnefndar að það hafi einhvern veginn komið manni algjörlega í opna skjöldu að Seðlabankanum þætti þetta, þvert á móti. Tilefni þess að við töldum að það yrði að óska umsagnar Seðlabankans og fá þennan fund er akkúrat þetta. Hann var búinn að segja þetta árið 2020. Ef við förum að útvíkka úrræðið þá getur það haft þessi áhrif og getur leitt til mótvægisaðgerða Seðlabankans. Þannig að það var ekkert hakan í gólf hvað þetta varðar. Fulltrúar Seðlabankans komu við fyrsta tækifæri á fund nefndarinnar og fóru yfir álit sitt á málinu. Ég mun fara betur yfir það síðar en viðbrögðin í kjölfarið vöktu nokkra furðu mína. Þá er það í raun og veru tvennt: Í fyrsta lagi þetta samtal sem á sér stað á milli ráðuneytanna og Seðlabankans, og ég skal ekki segja um það. Sjálfum þætti mér eðlilegra, sitjandi hér á Alþingi Íslendinga, að slík vinna, slík samtöl, færi fram á vettvangi velferðarnefndar sem fer með málið, hefur löggjafarvaldið, ekki framkvæmdarvaldsins. En gott og vel, það var einhvers konar samtal á milli þessara aðila.

Okkur er svo tjáð, af fulltrúum meiri hlutans og raunar líka einstaka fulltrúum frá ráðuneytunum, að Seðlabankinn hafi bara misskilið málið, reiknað vitlaust. Það eru mjög stór orð. Og þá held ég að sé kannski rétt á þessum tímapunkti að fara aðeins yfir athugasemdir Seðlabankans í málinu, svona helstu þætti. Það voru auðvitað aðrir umsagnaraðilar sem gagnrýndu frumvarpið eða bentu á vankanta þess. Þar á meðal vísa ég í umsögn stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, en hún vísaði til þess að á tilteknu tímabili hefðu 1.100 hlutdeildarlán verið veitt á landsvísu en eingöngu tvö fallið til íbúða á Norðurlandi vestra. Þetta jafngildir 0,18%. 0,18% af öllum hlutdeildarlánunum fóru til fasteignakaupa á Norðurlandi vestra. Og hvað er verið að gera með frumvarpinu? Það er verið að minnka þessa möguleika enn frekar, vegna þess að í frumvarpinu var þessi heimild sem nú er verið að fella út, 2. málsl. 5. mgr. 29. gr. a, um heimild til þess að taka eldri íbúðir sem hafa verið endurgerðar og nýta í úrræðinu, sem myndi einmitt henta landsbyggðinni vel.

En Seðlabankinn fór að nefna að úrræðið væri orðið mjög víðtækt. Hann nefnir að tekjuviðmið einstaklinga sé litlu lægra en miðgildi heildarlauna árið 2024. Þetta segir Seðlabankinn. Ekki er hann eitthvað að reikna vitlaust þar. Og hann segir líka að séu tekjuviðmiðin borin saman við staðtölur skatta fyrir árið 2024, framreiknaðar með sama hætti, muni rúmlega 80% heimila einstaklinga og um þriðjungur heimila hjóna eða sambúðarfólks falla innan tekjuviðmiðanna. Þetta er Seðlabankinn að benda á. Úrræðið er orðið mjög víðtækt. Það eru margir sem geta hugsanlega sótt um og þá komum við náttúrlega að þessu kjarnaatriði. Það er og hefur verið spenna í þjóðarbúinu. Við erum núna á þeirri leið, og höfum verið að mjakast þar að undanförnu, að það hafa verið skilyrði til þess að lækka vexti og þá er mikilvægt að ekki sé verið að gera eitthvað annað í hinum örmum hagstjórnarinnar sem gæti sett þetta út af veginum. Seðlabankinn hafði einmitt áhyggjur af þessu, til hversu margra aðila þetta nær. Danski seðlabankinn hafði rætt um áhrif svona víðtækra aðgerða, að þær væru einmitt eftirspurnarhvetjandi og hefðu þar með þau áhrif að húsnæðisverð hækkar. Allir hinir sem fá ekki aðstoðina sitja eftir með hærra húsnæðisverð og enn verri möguleika á að komast inn á markaðinn.

Þetta er einmitt kjarnaatriðið. Þó að því sé haldið fram að þetta sé framboðsdrifið er í það minnsta Seðlabankinn þeirrar skoðunar að þetta sé eftirspurnardrifið og það er auðvitað mjög óheppilegt þegar hið opinbera er að gera svo margt sem hamlar framboðshliðinni. Þar er verk að vinna, brjóta land, byggja fleiri íbúðir, byggja þær íbúðir sem fólkið þarf, minnka reglugerðafarganið o.s.frv. Það er því óþægilegt til þess að vita að við séum hér þá líklega að fara að afgreiða þetta frumvarp án þess að Seðlabankinn hafi fengið tækifæri til að bregðast við þeirri gagnrýni sem hefur verið sett fram á umsögn hans. Það er óskiljanlegt. Ég verð bara að segja það. Mér finnst óskiljanlegt að meiri hlutinn hér á Alþingi, ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, vilji ekki að fulltrúar Seðlabankans komi og veiti Alþingi Íslendinga upplýsingar sem hafa áhrif á hagstjórnina, geti hamlað þeirri vinnu sem við ættum að vera saman í, að lækka hér verðbólgu og vexti.

En nei, slíkur er æðibunugangurinn í þessu máli að það má ekki, heldur eigum við að taka það trúanlegt, að treysta orðum meiri hlutans eða annarra sem hafa komið fram fyrir þeirra hönd í ráðuneytunum, að Seðlabankinn hafi bara misskilið þetta. Það er býsna ósanngjörn gagnrýni, verð ég að segja, að halda því fram að Seðlabankinn hafi misskilið þetta eða reiknað rangt vegna þess að hann hafi ekki horft á hámarksverðið eins og það er útlistað í drögum að reglugerð sem var afhent okkur í velferðarnefnd eftir að Seðlabankinn hafði sett fram sína gagnrýni á frumvarpið. Og Seðlabankinn nefndi það einmitt á fundi okkar, sem er þetta klassíska og við erum alltaf að lenda í hér á hinu háa Alþingi, að við værum að framselja vald í allt of ríkum mæli. Seðlabankinn gagnrýndi það sérstaklega að reglugerðarheimildin væri svo opin. Ráðherrann getur bara ákveðið hámarksverðið með þeim hætti sem hann kýs. Við erum að setja hér lög, ekki reglugerðir.

En þarna var því haldið fram að Seðlabankinn hefði misskilið málið og reiknað vitlaust sökum þess að hann vissi ekki af og hefði ekki litið til þessa skjals sem var þá í vinnslu í ráðuneytinu og hafði hvorki verið kynnt okkur né þá væntanlega heldur Seðlabankanum. En það er hægt að segja fjölmargt um þetta mál. Það er óheppilegt að ekki hafi verið hægt að gefa sér meiri tíma í að rýna það. Sjálfum finnst mér óþægilegt að Seðlabankinn hafi ekki veitt okkur fullvissu um að þetta sé í lagi en ekki gafst tími til þess. Á því verða aðrir aðilar að bera ábyrgð.

Ég verð að segja að lokum að hæstv. forsætisráðherra varð tíðrætt um það á síðasta kjörtímabili að Seðlabankinn væri einn í sinni baráttu, að vinna niður verðbólgu og vexti í landinu. Að hagstjórnin, þáverandi ríkisstjórn, væri þensluhvetjandi og skildi Seðlabankann einan eftir í sínum aðgerðum. Svo kemur hún til valda og hagar sér með nákvæmlega þeim hætti sem verið var að gagnrýna. Ég hlakka því bara til að fylgjast með áframhaldandi umræðum um málið. Ég vildi óska þess að gefist hefði meiri tími til að gaumgæfa það því að ég tel, og það er mín reynsla af fulltrúum annarra flokka og meiri hlutans í velferðarnefnd, að það sé vilji til þess að vanda til verka og afla upplýsinga. Við þurfum að hafa tíma til þess og hann einfaldlega gafst ekki og það er miður.