157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[15:25]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðilegt andsvar, skemmtilegt að mörgu leyti. Það er vissulega rétt að séreignarstefnan er eitt af kjarnaatriðunum í stefnu Sjálfstæðisflokksins og hefur verið um ómunatíð. Svo er og verður áfram. Hins vegar erum við hér að tala um úrræði sem er býsna víðtækt og er alltaf bundið þeim vanda sem ég hef nefnt hér — þetta er svona „haltu mér, slepptu mér“. Það er annars vegar verið að vísa til þess og halda því fram að þetta sé svo lítið úrræði, þetta sé svo lítil breyting og það séu svo fáir sem fái notið þess, að það hafi ekki þensluhvetjandi áhrif. Hins vegar að þetta sé náttúrlega svo mikilvægt og það er mikilvægt fyrir þá sem fá notið þessa úrræðis.

Staðreyndin er sú að það sem við erum að gera með þessu frumvarpi er fyrst og fremst að fjölga hugsanlegum umsækjendum. Það er það sem við erum að gera. Við erum að fjölga nei-unum, fjölga aðilum sem geta sótt um þetta úrræði, geta sótt um hlutdeildarlánin og fá nei. Það er fyrst og fremst það sem við erum að gera og þá er sjálfsagt að gagnrýna það ef áhættan er sú að þetta hafi einmitt áhrif á verðbólguþenslu hér á landi eða efnahagslífið og gæti þá hugsanlega leitt til einhverra mótvægisaðgerða eða bara hækkaðs íbúðaverðs fyrir þá sem fá ekki notið úrræðisins.

Það er ekki bara ég sem er að benda á þetta heldur líka Seðlabankinn. Þá erum við hv. þingmaður fullkomlega sammála um að björninn verður unninn á framboðshliðinni. Þar liggur verkefnið. Þar getum við og Flokkur fólksins verið sammála — brjóta land, stækka svæðismörk höfuðborgarsvæðisins, minnka (Forseti hringir.) reglufarganið í tengslum við uppbyggingu íbúða, greiða leiðina til þess að fólk (Forseti hringir.) geti keypt sér íbúðir yfir höfuð sér. Takk.