157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[15:28]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Við fjöllum hér um frumvarp til breytinga á lögum um húsnæðismál sem kennt er við hlutdeildarlán. Málið hefur verið til umfjöllunar í hv. velferðarnefnd hvar ég á sæti. Áður en lengra er haldið vil ég þakka öllum nefndarmönnum fyrir gott samstarf í nefndinni við meðferð þessa máls og almennt fyrir starfið í vetur. Að mínu mati eigum við í nefndinni heiðarleg og hreinskiptin skoðanaskipti þó að ljóst sé að leið okkar að markmiðinu er ekki alltaf sú sama. Þó kemur það fyrir.

Hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, Inga Sæland, mælti fyrir frumvarpinu 5. desember síðastliðinn en málinu hafði verið útbýtt nokkrum dögum fyrr eða 28. nóvember. Að sönnu hefði sá tími sem nefndin hafði málið til meðferðar mátt vera lengri en þó er rétt að geta þess að á þeim tveimur vikum sem liðnar eru frá framsögu hæstv. ráðherra hefur nefndin unnið sleitulaust að málinu og fjallað ítarlega um efni frumvarpsins sem er hér til umræðu. Nefndin fékk á sinn fund gesti frá helstu stofnunum og hagsmunaaðilum, m.a. frá tveimur ráðuneytum og Seðlabanka Íslands, þ.e. fulltrúa frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðherra ásamt fleirum.

Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um húsnæðismál með það að markmiði að festa hlutdeildarlán varanlega í sessi og tryggja fyrirsjáanleika fyrir lántaka og byggingaraðila. Markmiðið er að auðvelda fyrstu kaupendum leið inn á húsnæðismarkaðinn án þess að þurfa fjárhagslegan stuðning frá ættingjum. Breytingarnar miða að aukinni skilvirkni og hagkvæmni í kerfinu.

Fjallað var um áhrif frumvarpsins á húsnæðismarkað og fasteignaverð. Í umsögnum komu fram ólík sjónarmið. Viðskiptaráð benti á að hlutdeildarlán gætu haft þveröfug áhrif en til var ætlast og jafnvel ýtt undir hækkun fasteignaverðs. Seðlabanki Íslands lagði áherslu á að útvíkkun úrræðisins gæti aukið eftirspurn og þar með verðbólgu sem myndi vinna gegn markmiðum peningastefnunnar. Bankinn taldi mikilvægt að takmarka umfang úrræðisins og beina því að þeim hópi sem raunverulega þarf á aðstoð að halda. Á hinn bóginn bentu fulltrúar félags- og húsnæðismálaráðuneytis á að frumvarpið sé liður í því að auka framboð á hagkvæmum íbúðum sem er sérstaklega mikilvægt þegar útlit er fyrir kólnun í hagkerfinu og á byggingamarkaði.

Með frumvarpinu er gert ráð fyrir því að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun geti gert samning við byggingaraðila um íbúðir sem uppfylla skilyrði um hagkvæmni, stærð og hámarksverð. Í þessu sambandi er rétt að tiltaka að þegar hlutdeildarlán voru innleidd árið 2020 var gert ráð fyrir að veitt yrðu hlutdeildarlán fyrir 400–500 íbúðum á ári næstu tíu ár þar á eftir. Ekki var talið að slíkt umfang yrði líklegt til að hafa í för með sér efnahagsleg áhrif. Á þeim árum sem liðin eru voru þó ekki veitt svo mörg lán á ári heldur voru flest hlutdeildarlán veitt árið 2021 eða 297 talsins. Samkvæmt því frumvarpi sem hér er til umfjöllunar er gert ráð fyrir því að fjöldi lána verði á bilinu 280–310 talsins á ári.

Þó að ég nefni þetta hér er ég ekki að gera því skóna að aðstæður séu algerlega þær sömu í efnahagslífi þjóðarinnar og árið 2020. Aðgerðir við mismunandi aðstæður kunna að hafa mismunandi efnahagsleg áhrif. Það er mikilvægt að taka tillit til þeirra athugasemda sem koma frá Seðlabanka Íslands og minnka svo sem kostur er að aðgerðir stjórnvalda þegar kemur að húsnæðismarkaði hafi áhrif á verð til hækkunar þar sem hækkun húsnæðisverðs hefur víðtæk áhrif og getur unnið gegn markmiðum peningastefnunnar.

Frú forseti. Ég legg áherslu á að umfang úrræðisins er áfram bundið við fjárheimildir í fjárlögum og skýr skilyrði laganna. Skilyrðin eru skýr og skapa ramma um það hverjir eiga möguleika á að fá hlutdeildarlán þannig að markmið laganna og þessa frumvarps náist. Þau eru fyrst og fremst að auka skilvirkni svo að hlutdeildarlán nýtist í auknum mæli til að greiða leið fyrstu kaupenda að húsnæðismarkaðnum án fjárhagslegs stuðnings frá ættingjum eins og áður hefur komið fram.

Skilyrðin eru u.þ.b. tugur eftir því hve mikið textinn sem inniheldur þau er brotinn niður. Almenn skilyrði úrræðisins, skv. 29. gr. b laganna, takmarka umfangið en umsækjandi þarf til viðbótar því að vera undir tekjumörkum skv. 29. gr. a laganna að sýna fram á að hann geti ekki fjármagnað kaup á íbúðarhúsnæði nema með hlutdeildarláni. Umsækjandi má ekki eiga annað íbúðarhúsnæði eða hafa átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár. Umsækjandi þarf að leggja fram eigið fé sem nemur að lágmarki 5% kaupverðs, standast greiðslumat vegna lánsfjármögnunar og meðalafborganir fasteignaláns mega ekki nema meira en 40% af ráðstöfunartekjum umsækjanda ef um er að ræða hjón eða sambúðarfólk eða 45% ef um einstakling er að ræða. Þá skulu lán sem koma á undan hlutdeildarláni í veðröð að jafnaði ekki vera til lengri tíma en 25 ára. Þá er enn fremur umfang úrræðisins takmarkað þar sem kaupverði íbúða eru sett takmörk með hámarksverði innan hvers verðflokks, út frá staðsetningu, stærð og herbergjafjölda og einnig með sérstöku mati Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á heimiluðu söluverði hverrar íbúðar innan þess ramma sem hámarksverðið setur. Fjölskyldustærð umsækjanda setur því einnig skorður hve stóra íbúð umsækjandi getur keypt með hlutdeildarláni.

Með frumvarpinu er einnig lagt til að hámarksgreiðslubyrðarhlutfall einstaklinga hækki úr 40% í 45% til að auðvelda þeim sem nú greiða háa leigu að komast í eigið húsnæði. Til að skýra það aðeins nánar þá er átt við að það kunni að vera að umsækjendur séu á leigumarkaði og greiði allt að 45% eða jafnvel hærra hlutfall ráðstöfunartekna sinna í leigu og geta þar af leiðandi líka greitt svo hátt hlutfall ráðstöfunartekna af lánum. Seðlabankinn hefur varað við þessari breytingu vegna aukinnar hættu en ráðuneytið bendir á að hún sé nauðsynleg til að styðja við þennan hóp.

Virðulegi forseti. Frumvarpið tekur áfram einungis til nýrra íbúða. Nefndin telur það mikilvægt til að tryggja framboðshvetjandi áhrif kerfisins og sporna gegn hækkun fasteignaverðs. Þá er rétt að tiltaka að þeir umsækjendur sem til greina kemur að fái hlutdeildarlán eru að jafnaði tekjulitlir og standa illa að vígi ef nýkeypt húsnæði þarfnast viðhalds. Minni líkur eru á því með nýjar íbúðir. Þá er gert ráð fyrir að fjölga verðflokkum til að taka betur mið af ólíkum markaðsaðstæðum á landsbyggðinni.

Í umsögnum sem nefndinni bárust komu fram sjónarmið um að úrræðið virki ekki nægilega vel fyrir fatlað fólk og að huga þurfi að félagslegri stöðu umsækjenda. Það er hægt, og er nauðsynlegt, að taka undir mikilvægi þess að tryggja jöfnuð og húsnæðisöryggi en ég tel ekki rétt að útvíkka þetta úrræði umfram það sem frumvarpið kveður á um, einkum í ljósi áhættu sem Seðlabankinn hefur bent á og því rétt að reyna að horfa til annarra úrræða fyrir þennan hóp.

Ég ætla nú að víkja stuttlega að breytingum sem meiri hluti velferðarnefndar leggur til í frumvarpinu í því augnamiði að draga úr eftirspurnaráhrifum og áhættu og koma þannig til móts við áhyggjur Seðlabanka Íslands en jafnframt að tryggja virkni kerfisins. Helstu breytingartillögur eru að almenn tekjumörk hjóna og sambúðarfólks verði lækkuð úr 15.965.000 kr. í 15 millj. kr. og að hlutfall hlutdeildarláns af kaupverði íbúðar verði 25% í stað 30% af fyrir lántakendur undir almennum tekjumörkum. Aðrar breytingartillögur eru tæknilegs eðlis utan tillögu þess efnis að umsækjandi sem er með dvalarleyfi hér á landi skuli hafa ótímabundið dvalarleyfi samkvæmt lögum um útlendinga.

Frú forseti. Að teknu tilliti til þess sem ég hef rakið hér að framan tel ég mikilvægt að þetta frumvarp verði samþykkt. Markmiðið er skýrt: Að tryggja húsnæðisöryggi, styðja við fyrstu kaupendur og stuðla að jafnvægi á húsnæðismarkaði án þess að auka óhóflega áhættu fyrir lántaka eða ríkissjóð.

Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.