húsnæðismál.
Frú forseti. Við erum að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, eða öllu heldur hlutdeildarlán, og ánægjulegt að heyra hér í hv. þm. Kristjáni Þórði Snæbjörnssyni, en hann talaði einmitt um að Samfylkingin væri að styðja þetta mál og hlutdeildarlán. Ég er stolt af því að þetta er einmitt eitt af því sem við í Framsókn komum á koppinn, þetta verkefni og þetta úrræði, í rauninni til þess að auðvelda fólki aðgang að sinni fyrstu fasteign.
Mig langar aðeins að reifa þetta mál því þetta er mjög jákvætt mál að mörgu leyti en síðan mun ég síðar í ræðunni minni kannski fara aðeins yfir vinnubrögðin hvað þetta varðar, sem er kannski það sem er ámælisvert. Það er verið að bregðast við vissum aðstæðum í samfélaginu og bæta inn fyrirsjáanleika sem vissulega skorti inn í kerfið, sem þýðir að meiri hlutinn hefur talað fyrir því að nú verði þessum hlutdeildarlánum úthlutað mánaðarlega. Það er mjög mikilvægt, það er mikilvægt fyrir greinina, það er mikilvægt fyrir verktaka að hafa þennan fyrirsjáanleika og það festir þetta úrræði enn frekar í sessi, sem er mjög jákvætt. Það er líka verið að setja inn aukið fjármagn, það er verið að bæta 1,5 milljörðum þarna við. Mig langar að benda á að það er afar mikilvægt samt sem áður, í ljósi svara sem ég fékk við fyrirspurninni minni varðandi hvert þessi hlutdeildarlán fara hvað varðar landsvæði, að það hallar alveg verulega á landsbyggðina í þeim efnum og núna er verið að þrengja enn frekar að landsbyggðinni með því að taka út og þrengja þetta varðandi notað húsnæði. Ég vil hvetja hæstv. stjórnarmeirihluta til að fylgjast vel með hvernig hlutdeildarlánin munu í rauninni þróast varðandi úthlutun og þá út frá mismunandi svæðum á landinu.
Það er í rauninni alveg skýrt að þetta verkefni er að skila mjög jákvæðum og góðum árangri en auðvitað hafa vissir hagaðilar áhyggjur af, eins og t.d. varðandi eftirspurnina, hvaða áhrif það hefur á markaðinn. Við í minni hlutanum í velferðarnefnd kölluðum einmitt eftir upplýsingum þess efnis og greiningum, áhrifamati á hvaða áhrif þessar breytingar sem hér er verið að leggja til myndu hafa á markaðinn en því miður var ekki orðið við þeirri beiðni. En hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson fór ágætlega yfir það í ræðu sinni hvernig vinnubrögðin í kringum þetta mál hafa blasað við okkur. Það hefur nú auðvitað komið skýrt fram og mig langar að leiðrétta mig vegna þess að mér finnst mikilvægt að hér sé sagt satt og rétt frá og ég leit rangt á. Ég horfði á 8. desember þegar var verið að mæla fyrir málinu, en málið kom vissulega inn fyrir tímafrestinn varðandi framlagningu mála, svo ég leiðrétti mig hér með.
Það var mælt fyrir þessu máli á föstudagskvöldi, málinu var vísað strax til nefndar og það sent til umsagnar og á mánudagsmorgni var ráðuneytið kallað fyrir nefndina og líka umsagnaraðilar sem hafði hreinlega ekki gefist ráðrúm til þess að kynna sér málið, enda bara helgin þarna undir, hvað þá að skrifa umsögn, og voru með fyrirvara um að þau ættu eftir að kynna sér málið betur og þeirra viðhorf gætu hugsanlega breyst varðandi málið. Mig langar að setja fyrirvara við svona vinnubrögð vegna þess að þessir aðilar, fyrir utan félagsmálaráðuneytið, komu ekki aftur fyrir nefndina. Þeir sendu vissulega inn umsögn en fengu ekki tækifæri til að koma fyrir nefndina og svara spurningum okkar hvað það varðar og mér þykir það miður, vegna þess að hér erum við öll á okkar eigin forsendum og erum að greiða atkvæði hér á eftir í þessu máli, og við í Framsókn, eins mikið og við styðjum hlutdeildarlánin og allt sem þeim tengist, erum hreinlega sett í þá stöðu að það verður erfitt að styðja málið, sem við hefðum annars vissulega gert.
Það hefur nú komið fram hér að Seðlabanki Íslands sendi umsögn hvað varðaði málið og þeirra viðhorf. Þar kemur fram að mat Seðlabankans sé að veruleg útvíkkun úrræðisins nú samhliða auknu umfangi þess gæti að öðru óbreyttu leitt til hækkunar húsnæðisverðs með aukinni áhættu, bæði fyrir lántaka og ríkissjóð. Hækkun húsnæðisverðs gæti einnig gert stöðuna enn erfiðari fyrir þau sem hyggjast kaupa sína fyrstu fasteign en njóta ekki þeirrar fyrirgreiðslu sem í úrræðinu felst. Þannig að við erum þá í rauninni að gera ungu fólki enn erfiðara fyrir að kaupa sína fyrstu fasteign. Hér var m.a. líka verið að hækka skatta hvað varðar leigutekjur sem þýðir að þetta unga fólk sem er hugsanlega búið að leggja fyrir allan sinn sparnað og er að reyna að kaupa sér fasteign til þess einmitt hugsanlega að leigja út og er þá ekki að nýta sér hlutdeildarlánin, eðlilega, en vill nýta sínar leigutekjur til að greiða niður lán og reyna að borga fasteignina jafnvel niður í meiri mæli; það verður erfiðara fyrir þau. Auk þess gæti þetta hugsanlega leitt til þess að húsnæðisverð hækkaði enn meira og hækkun húsnæðisverðs, eins og kemur fram hjá Seðlabankanum, getur aukið eftirspurn og þannig unnið gegn markmiðum peningastefnunnar og jafnvel stuðlað að aukinni verðbólgu. Þetta kemur allt fram í umsögn Seðlabanka Íslands og þeir vara við þessu og tala um að hugsanlega þurfi þeir líka að breyta einhverju hjá sér hvað varðar peningalegt aðhald og beitingu þjóðhagsvarúðartækja bankanna.
Þetta er auðvitað umsögn sem vakti alla nefndina til umhugsunar og við ræddum þetta vel í nefndinni. Svo fengum við upplýsingar þess efnis að meiri hlutinn hygðist gera breytingar á málinu sem við erum að fjalla um hér í dag þar sem er verið að lækka töluna og hlutfallstölur líka til þess að reyna að koma til móts við áhyggjur Seðlabanka Íslands og það er vel. Við höfum fengið upplýsingar þess efnis að ráðuneytið, félags- og jafnvel fjármálaráðuneytið, hafi fundað með bankanum og viljað meina að þetta sé allt saman gott og gilt. Við höfum kallað eftir því að fá viðbrögð frá Seðlabanka Íslands því það er ósköp eðlilegt þegar er verið að gera breytingar á máli sem er verið að þrýsta í gegn án þess að fólki hafi gefist nægilegur tími varðandi umsagnir, að við fáum þá a.m.k. viðbrögð frá eins og Seðlabanka Íslands sem sendi mjög sterka umsögn í kringum málið. Því var hafnað.
Því var hafnað, sem er miður, því að við hefðum alveg getað gefið okkur tíma í gær og hugsanlega í morgun til þess að kalla þá fyrir nefndina einmitt til þess bara að þingmenn hefðu meiri fullvissu fyrir því að það sem er verið að gera hér og leggja til sé nægjanlegt til að róa áhyggjur Seðlabankans, sem meiri hlutinn hefur talað um að væri hreinlega misskilningur, Seðlabanki Íslands hafi bara misskilið vissa hluti í málinu og hreinlega reiknað vitlaust. Ef það er rétt þá er það bara gott og vel. En það er mikilvægt að fá þau viðbrögð frá Seðlabankanum inn á borð velferðarnefndar til þess að fá fullvissu um að það sé rétt. En þetta er kannski það sem við höfum áhyggjur af og t.d. líka, eins og hefur komið fram, að HMS, sem er einmitt með þennan húsnæðissjóð, sendi ekki inn umsögn. Ég veit ekki hvort það hafi ekki gefist tími eða annað en þeir komu ekki fyrir nefndina, sem er miður. Þeir hefðu jafnvel getað skýrt málið kannski enn frekar fyrir okkur. Svo er það nú þannig að við í minni hlutanum höfum varpað fram alls konar spurningum í kringum þetta mál sem varð m.a. til þess að hér voru lagðar fram breytingartillögur á málinu, sem sýna einmitt mikilvægi þess að mál sem eru lögð fyrir þingið fái þinglega meðferð því að þau verða oft betri fyrir vikið. Öll erum við að vinna að því að hér sé vönduð lagasetning því að mistök geta reynst mjög dýrkeypt og erfitt stundum, ef nokkur möguleiki er, að lagfæra.
Það er líka annað sem kom fram í meðferð málsins, að þegar við vorum að ræða saman í velferðarnefnd var verið að ræða fjármögnunina, af því að það er verið að hækka hér úr 4 milljörðum í 5,5, hvort það þyrfti ekki að gera ráð fyrir því í fjárlögum. Það virðist hafa gleymst en fyrir vikið var bætt úr því í gær og lögð fram breytingartillaga á fjárlögum til að hækka þessa heimild úr 4 milljörðum í 5,5. Þetta hefði getað þurft að kalla á annað mál ef við hefðum ekki komið auga á þetta. Það er einmitt það sem er mikilvægt í þessu en svona í stóru myndinni er þetta mjög jákvætt mál. Þetta er mikilvægt mál. Nú er staðan bara þannig að ég hefði t.d. fyrir mitt leyti kosið að hafa meiri tíma til þess að fjalla um þetta mál en það var ekki gefinn meiri tími til þess. Hér á að klára málið í dag en það er á ábyrgð stjórnarmeirihlutans að gera það. Það er ábyrgðarhluti að fara með vald og það er afar mikilvægt að við sýnum þinginu og þeirri þinglegu meðferð sem mál þurfa að fara hér í gegnum, þó að maður hafi fullan skilning á því að stundum þurfi að hraða verkum. Ég þekki það nú, hafandi verið í stjórnarmeirihluta sjálf, en við megum ekki láta kappið bera okkur ofurliði. Fyrir mitt leyti, ég veit að það eru verktakar sem bíða, en þá veltir maður líka fyrir sér varðandi forgangsröðun stjórnarmeirihlutans, af því að hér hefur dagskráin verið frekar þunn á haustþinginu og nægur tími til að ræða einmitt mál sem þessi. Þannig að ef þetta er í forgangi hjá hæstv. ríkisstjórn hefði þeim verið í lófa lagið að leggja málið fyrr fram svo að það hefði fengið nægilega umfjöllun í nefndinni. En þetta er í rauninni þannig, eins og ég segi, þetta er á ábyrgð stjórnarmeirihlutans, gott mál, en við í þingflokki Framsóknar munum því miður sitja hjá í afgreiðslu hér á eftir.