húsnæðismál.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar ræðu og gleðst yfir því og veit í hjarta mínu að hún styður þetta mál. Þetta er gott mál og við eigum öll dálítið í þessu máli, sumir frá fyrri tíð og aðrir núna. Ég vil bara benda á að það er hægt að vinna vel þótt unnið sé hratt. Stundum er það jafnvel betra að vinna hratt og með skilvirkum hætti, það getur oft skilað mjög góðri útkomu. Það hangir ekkert endilega saman að þó að við hefðum verið lengur, fengið Seðlabankann aftur, fengið ráðuneytið aftur, fengið umsagnaraðilana aftur, sem voru búnir að koma þó að þeir væru ekki búnir að senda inn umsögn en hafi ætlað að gera það en gerðu það síðan ekki — það eru svona hlutir sem ég vil bara benda á að hefðu ekkert endilega skilað neinni annarri niðurstöðu, og ég efast um það. Ég upplifi að þetta mál hafi verið unnið gríðarlega vel vegna þess að það var eiginlega unnið 24 tíma á sólarhring þarna síðustu dagana. Það voru allir á fullu og mjög fókuseraðir á að klára þetta verkefni af því að það skiptir máli að koma þessu út, eins og ég lýsti í ræðu minni áðan þá bíða allir. Ég vil bara spyrja hv. þingmann hvort hún sé ekki tilbúin til að leggja það til hliðar að kannski hefði mátt dunda sér við að fara í svona ping–pong, fá Seðlabankann aftur, fá ráðuneytið aftur. Af því að ég held að í hjarta sínu styðji hún þetta mál heils hugar þá er kannski bara í lagi að segja já og ýta á rauða takkann á eftir. Þetta er svona spurning.