húsnæðismál.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Það er ósköp eðlilegt að Seðlabanki Íslands hafi ekki sent neinar upplýsingar því að það var ekki kallað eftir því. Því var neitað að kallað yrði eftir þeim upplýsingum sem við óskuðum eftir frá Seðlabankanum varðandi viðbrögð hans við þessum breytingartillögum. En gott og vel. Það var reyndar fleira sem kom fram í umsögn Seðlabankans. Þeir hafa áhyggjur af því að þetta verði verðbólguhvetjandi, þetta verði þensluhvetjandi. Á undanförnum klukkustundum og sólarhringum hafa töluverðar skattahækkanir verið samþykktar í þessum þingsal í boði hæstv. ríkisstjórnar. Það mun verða verulega íþyngjandi fyrir fjölskyldur í landinu, fyrir venjulegt fólk í landinu, og fyrir fyrirtækin. Ef áhyggjur Seðlabankans raungerast, sem ég bind vonir við að gerist ekki, þá hafa þeir áhyggjur af því að þetta verði til þess að verðbólga muni hækka enn frekar hér. Við sjáum fram á að Seðlabanki Íslands muni tilkynna sína stýrivaxtaákvörðun í febrúar á nýju ári en miðað við umræddar skattahækkanir höfum við því miður áhyggjur af því að við munum ekki sjá fram á lækkun vaxta og verðbólgu hér á næstu mánuðum, sem er einmitt keppikefli okkar allra að ná tökum á. Það er eitt mesta hagsmunamál heimila og fyrirtækja í landinu að ná tökum á verðbólgu og vöxtum. Við skulum sjá hvað setur.
Ég þakka fyrir umræðuna og vil kannski ljúka ræðu minni á því að þakka öllum félögum mínum í velferðarnefnd fyrir samstarfið á þessu haustþingi. Það hefur gengið ágætlega að vinna saman en ég vona að við náum enn betur saman á næstkomandi ári.