157. löggjafarþing — 52. fundur, 18. des. 2025.
kílómetragjald á ökutæki.
144. mál
Virðulegi forseti. Ég vildi bara koma upp og benda þingheimi á að þrátt fyrir það hversu vel málið er unnið, hvað það er búið að vera lengi til umræðu og hvað allir eru tilbúnir þá erum við samt hér í 3. umræðu að greiða atkvæði um enn eina breytingartillöguna, tæknilegar breytingar til að málið gangi upp, og það á örugglega eftir að koma langur, langur bandormur á næsta ári til að leiðrétta öll vandamálin sem koma upp.