157. löggjafarþing — 52. fundur, 18. des. 2025.
kílómetragjald á ökutæki.
144. mál
Forseti. Fimm og hálfur dagur í að þetta frumvarp eigi að taka gildi. Þar inni í eru Þorláksmessa og gamlársdagur. Það liggur fyrir að fyrirtæki munu ekki geta framfylgt þessum lögum. Engu að síður er sektarheimildarákvæði upp að 100 milljónum. Það er fyrir neðan allar hellur að þetta sé samþykkt hérna í dag þegar það liggur fyrir að fyrirtækin geta ekki framfylgt þessum lögum og því segi ég nei.