157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:05]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að enda á því að fjalla um það mál sem ég held að ég hafi fengið hvað flest skilaboð um og áhyggjur af í þessu máli og það er að nú sé verið að fara að innheimta þessa skattheimtu út frá ólöggiltum mælum. Það eru mjög ónákvæmir gjaldmælar eða kílómetramælar sem eru að fara að sjá um að mæla þetta, með miklum vikmörkum. Það var mikið rætt í nefndinni en það var bara ákveðið að hafa þetta svona, svo það sé sagt.

Að lokum vil ég bara segja að þessi atkvæðagreiðsla hér um það að þetta verði að lögum á eftir að skapa margar andvökunætur fyrir marga, setja marga í mikið vesen, vera mjög kostnaðarsamt og hafa ófyrirséðar afleiðingar í för með sér.