kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Það gera sér allir grein fyrir því að við þurfum að innheimta gjöld af einhverju tagi til að standa undir vegakerfinu okkar. Það sem hefur hins vegar komið fram í þessari umræðu er sérstaklega það sem snýr að fyrirsjáanleika þegar við erum að innleiða nýtt kerfi. Við erum að gera það með stuttum fyrirvara og það er eðlilegt að atvinnulífið, sérstaklega ferðaþjónustan í þessu tilfelli, þurfi meiri fyrirvara. Þess vegna er eðlilegt að gera ráð fyrir slíku þegar við erum að innleiða nýtt kerfi og þetta er ekki nógu gott við þá breytingu sem er verið að greiða atkvæði um hér í dag.