157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[17:12]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil bara koma hér upp og lýsa yfir stuðningi Viðreisnar við þetta mál. Þetta er gott mál. Þetta er auðvitað þannig að þessu er beint að fyrstu kaupendum og þeim sem minnst hafa og hafa ekki möguleika á að fá stuðning frá fjölskyldu sinni. Það eru ýmis álitaefni sem komu upp við meðferð málsins fyrir hv. velferðarnefnd. Það var snörp vinna við þetta en hún gekk ágætlega og ég vil bara nota tækifærið og þakka hv. velferðarnefnd fyrir samstarfið. Það voru vissulega góðar ábendingar frá bæði minni hluta og meiri hluta. En málið er gott og við styðjum það. — Takk.