157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[17:13]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Mig langaði að koma upp og lýsa því yfir að ég styð þetta góða mál og þingflokkur Samfylkingarinnar gerir það svo sannarlega líka. Þetta er eitt af þeim málum sem er verið að grípa til til að fjölga hagstæðu húsnæði á markaði og taka á þeim vandamálum sem þar hafa verið. Það er mjög mikilvægt að minna á að þetta er auðvitað hagstætt húsnæði sem er verið að byggja inn í þetta úrræði. Þetta er hagstæðara en almennt gerist og það er notað til fyrstu kaupa og auðvitað bara mjög mikilvægt. Virkilega gott mál. Ég þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra kærlega fyrir að koma með málið inn í þingið.