157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[17:14]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér erum við að samþykkja eitt af mörgum góðum málum sem þessi ríkisstjórn hefur verið að leggja fram. Hlutdeildarlánunum var komið á legg af síðustu ríkisstjórn árið 2020 og þau hafa gengið vel. Hér er verið að bæta um betur. Mörgum okkar hefur verið tíðrætt um að huga þurfi að þeim sem minna mega sín og sú umræða var hávær hér þegar verið var að ræða frítekjumark lífeyrissjóðsgreiðslna. Hér er einmitt verið að gera það. Hér er einmitt verið að huga að þeim sem standa illa og þess vegna held ég að við ættum að eiga mjög auðvelt með að vera á græna takkanum.