húsnæðismál.
Virðulegi forseti. Það gleður mig að fá tækifæri til að vera hér í dag og vera á græna takkanum um þetta mál sem við erum að taka afstöðu til hérna núna og hjálpa til við að styrkja þennan þátt húsnæðiskerfisins í landinu, styrkja það í sessi og gera það skilvirkara eins og lagt er upp með í þessu frumvarpi. Það er gott til þess að vita að — Byrjaði tónlist hérna þegar ég byrjaði að tala? [Hlátur í þingsal.] Það var ekki verra. Það eru tímamót á þingi. En það er gott til þess að vita að hæstv. ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er að taka til hendinni í húsnæðismálum og ekki vanþörf á því. Það er mjög gott til þess að vita að sú vinna er í gangi. Þetta er stór hluti af húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og við eigum auðvitað von á fleiri útspilum hvað það varðar. Það er mjög ánægjulegt fyrir mig að fá tækifæri til að leggja þessu máli lið í dag með því að styðja á græna hnappinn.