157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[17:19]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég tók virkan þátt í velferðarnefnd Alþingis þegar hlutdeildarlánin voru sett á, mjög mikilvægt úrræði og eina slíka úrræðið sem hjálpar fólki að eignast íbúðarhúsnæði, séreignarstefnan. Að sjálfsögðu er ég ánægður með að slíkt úrræði sé hér en við kynntumst því þá vel hversu mikilvæg hver grein er í þessu máli upp á hvernig þetta virkar og fyrir hverja. Þar þurfti miklar breytingar, mikla fundi og upplýsingagjöf til að koma uppgerðu húsnæði á landsbyggðinni inn í þetta, til þess að stilla af hvernig þetta væri gert, hvernig þetta yrði endurgreitt og annað slíkt. Því vekur það manni ugg þegar svona miklar breytingar eru gerðar á svona handahlaupum; að réttindi og úrræðið sem fólk er að fá hér geti skolast til og af því hef ég áhyggjur.

Við munum greiða atkvæði með einhverjum af breytingartillögunum sem eru til bóta en annars í heild sinni munum við sitja hjá í þessu máli. (Forseti hringir.) Ég hefði svo sannarlega viljað geta nýtt tímann og sett mig betur inn í þetta því að ég þekki það hversu flókið og vandasamt þetta var þegar kerfinu var komið af stað.