húsnæðismál.
Frú forseti. Ég vil bara byrja á því að þakka fyrir það að þetta góða mál skuli vera komið hér til afgreiðslu núna á þessum tíma. Ég vil þakka hv. velferðarnefnd fyrir vel unnin störf sem og öllum þeim sem að málinu komu. Ég bara segi: Til hamingju, við erum að gera góða hluti hérna. Við erum í raun að festa í sessi hlutdeildarlánin með fyrirsjáanleika. Eini munurinn á því sem áður var og því sem er núna er að við jukum framlagið inn í þennan hlutdeildarlánasjóð um 1,5 milljarða kr. Að öðru leyti er það óbreytt nema núna verður úthlutað úr honum mánaðarlega en ekki bara happa og glappa eins og áður var þar sem fólk lenti oft og tíðum í miklum erfiðleikum. Það var jafnvel búið að festa kaup og átti vilyrði fyrir því að geta fest sér eign en þá var hlutdeildarlánum allt í einu ekki úthlutað þannig að fólk missti af því. Núna er fyrirsjáanleiki. Við erum bara búin að auka um 1,5 milljarða. Til hamingju, við erum að taka utan um fyrstu kaupendur og efnaminnsta fólkið okkar. (Forseti hringir.) Séreignarstefna Sjálfstæðisflokksins ætti aldeilis að geta brosað fallega til allra í dag.