húsnæðismál.
Frú forseti. Ef mér reiknast rétt til er hér verið að fella út ákvæði um notað húsnæði og það að einstaklingar geti sótt um hlutdeildarlán hvað það varðar. Ég tel að það sé afar mikilvægt að við útvíkkum úthlutun hlutdeildarlána varðandi notað húsnæði og sérstaklega þegar kemur að landsbyggðinni því að við vitum að markaðurinn á landsbyggðinni er með allt öðrum hætti en hér á höfuðborgarsvæðinu. Byggingarkostnaður er mikill og þegar það verða kynslóðaskipti hvað varðar húsnæði fer eldra fólk jafnvel úr stóru húsnæði sem hentar mjög vel ungum fjölskyldum, barnmörgum fjölskyldum. Ég tel því miður að hér sé verið að taka þetta ákvæði út og við í þingflokki Framsóknar munum vera á rauðu þegar kemur að þessu.