157. löggjafarþing — 53. fundur,  18. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[17:49]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér greiðum við ekki atkvæði um 450.000 kr. skatta- og skerðingarlaust og illu heilli greiðum við ekki heldur atkvæði um snjallar lausnir Miðflokksins til að rétta hlut eldri borgara. Það eru gallar á því fyrirkomulagi sem hér er um að ræða og einhverjir kunna að hafa áhyggjur af því að með þessu sé verið að festa þá galla í sessi. Hins vegar er ljóst að með þessu er verið að bæta kjör langflestra eldri borgara, þótt undantekningar séu þar á, og af þeim sökum og í ljósi þess að eldri borgarar á Íslandi hafa lengi beðið eftir auknu réttlæti þá styðjum við þetta mál.