skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Hið sérstaka gerist aftur að meiri hlutinn ætlar að fella hér tillögu um það að góðgerðarfélög í þessu landi, viðurkennd félög, fái tækifæri til þess, þegar þau eru að byggja sér hús yfir starfsemi sína, að fá 100% endurgreiðslu á virðisaukaskatti. Þetta er eitthvað sem var sett í lög 2021 og átti að endurskoðast fyrir þessi áramót. Mörg félög eru þegar í framkvæmdum og ég ætla að nefna nokkur. Kvennaathvarfið var að fara í framkvæmdir, Ljósið, Björgunarsveitin Jökull á Jökuldal, Ársæll í Reykjavík, Dagrenning á Hólmavík, Tindar í Hnífsdal, Gerpir á Neskaupstað, Björgunarfélag Hornafjarðar, Súlur á Akureyri, Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík, Björgunarsveitin Sæbjörg á Flateyri, Hjálparsveit skáta í Kópavogi, voru reyndar að klára, og Björgunarfélagið Árborg. Þetta eru kveðjurnar sem hv. þingmenn og hæstv. ráðherrar meiri hlutans senda þessum góðu félögum sem eru að fara í milljóna framkvæmdir. Heildarkostnaður við þennan lið hefur verið í kringum 100 milljónir á ári, endurgreiðslu á virðisaukaskatti, (Forseti hringir.) ekki bein framlög úr ríkissjóði heldur endurgreiðsla á virðisaukaskatti til þessarar mikilvægu starfsemi sem mikið er byggð upp á sjálfboðaliðastarfi.
Þetta eru kaldar kveðjur, virðulegur forseti. Ég trúði ekki öðru í gær, þegar ég óskaði eftir því að málið færi til nefndar (Forseti hringir.) milli 2. og 3. umræðu, en að meiri hlutinn fyndi einhverja lausn á þessu einfalda máli en kæmi ekki með það að það ætti að gera eitthvað fyrir þetta fólk síðar, við endurskoðun á virðisaukaskattslögum. Nú eru framkvæmdir í gangi. Þær voru í gangi í dag og þær halda áfram strax eftir áramót (Forseti hringir.) en þá fá þessir aðilar ekki endurgreiddan virðisaukaskatt af vinnu á byggingarstað.