skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Þingflokkur Framsóknar styður þessa breytingartillögu hv. þm. Jóns Gunnarssonar. Okkur þykir miður að ríkisstjórnin hafi ekki séð ljósið og þegið höfðinglegt boð hans hér í gær þar sem hann taldi að persóna hans ætti ekki að þvælast fyrir þessu mikilvæga máli hér og bauð ríkisstjórnarflokkunum að taka þessa tillögu upp og gera að sinni. Mér þykir miður að það boð hafi ekki verið þegið. Hér er verið að vísa í einhverja endurskoðun sem mun taka tíma því að við vitum að mál sem fara fyrir þingið taka töluverðan tíma, (Gripið fram í: Ó, já.) og þegar kemur að þessum hollvinafélögum og þessum samtökum um land allt sem eru núna í framkvæmdum eru þetta vissulega kaldar kveðjur. Mér þykir miður að hér sé ekki hægt að samþykkja þetta og að þangað til og þegar og ef forsendur breytast þá sé þetta bara fellt úr gildi, eðlilega. Mér þykja þetta, því miður, ekki góðar jólakveðjur til þessara samtaka.