157. löggjafarþing — 53. fundur, 18. des. 2025.
skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
257. mál
Virðulegur forseti. Við viljum öll veg björgunarsveitanna sem mestan og annarra félaga, en er ég sannfærður um að besta og skilvirkasta og sanngjarnasta leiðin til þess sé í gegnum varanlega undanþágu frá virðisaukaskatti? Það er ég ekki. Ég er hins vegar sannfærður um að ríkisstjórnin finni góða leið til að treysta fjárhag þessara félaga á nýju ári.