skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Ég varð sorgmædd í hvert skipti sem allar þessar ömurlegu skattahækkanir voru samþykktar en þetta mál gengur eiginlega út yfir allt. Hér erum við í minni hlutanum ítrekað að samþykkja eitthvað frá meiri hlutanum, af því að það er kannski bara allt í lagi með málið, en ekki ein atkvæðagreiðsla hefur farið þannig að meiri hlutinn samþykki mál, alveg sama hvað það er gott mál, frá minni hlutanum, sem er ömurlegt. Það sem er enn verra er að ég tók þetta upp á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í morgun og mér var sagt að þetta hefði komið svo seint en það væri fullur vilji til að samþykkja þetta. Ég spurði sérstaklega: Þurfum við þá ekki að ákveða nýjan fundartíma? Nei, það er verið að skoða kostnaðinn við þetta, var mér sagt. Það er allt svikið þarna þannig að það er greinilega engin meining á bak við það að það sé vilji til að samþykkja það. Þetta er það sama og með kílómetragjaldið, það er bara eitthvað sagt til að róa fólk og svo er það svikið.