skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Ég ætla að leyfa mér að efast um að það sé rétt nálgun að reyna að stilla hlutum þannig upp að hér sé ríflega helmingur þingheims eitthvað sérstaklega á móti björgunarsveitunum og góðgerðarfélögum og tæpur helmingur þingheims með hjartalag sem aldeilis fær að skína úti í samfélaginu. (Gripið fram í.) Nú er það þannig að það er búið að útskýra það, hv. þingmenn, að það er vinna í gangi hjá ríkisstjórninni til að koma þessu í varanlegra, skynsamlegra og heppilegra form. Enn þá hef ég ekki hitt þann einstakling á Íslandi sem vill ekki veg björgunarsveitanna sem mestan. Það á við um hvern einasta þingmann stjórnarandstöðunnar. Það á við um hvern einasta þingmann ríkisstjórnarinnar. Það á við um hvern einasta landsmann. Þó að við fellum þessa tillögu þá gerum við það með vísan í það að það er verið að koma þessum málum, í samráði við aðilana, í betra horf. Og að lokum: Eigum við ekki bara öll að styðja björgunarsveitirnar um áramótin með því að kaupa flugelda? Við getum gert það. (Gripið fram í: Bla, bla bla.) (Gripið fram í.))
(Forseti (ÞSv): Forseti biður menn um að halda ró sinni.)