157. löggjafarþing — 53. fundur,  18. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:00]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þetta er söguleg stund fyrir þann sem hér stendur. Fyrir liggur fyrsta fjárlagafrumvarp þessarar ríkisstjórnar og ég er ákaflega stoltur af því verki sem um ræðir. Það hefur reynt á hina svokölluðu stöðugleikareglu sem Alþingi samþykkti í vor og meðferð þingsins hefur sýnt hversu mikilvæg sú regla er. Svo að við rifjum það aðeins upp þá takmarkar hún vöxt ríkisútgjalda við 2% en leyfir ekki umfangsaukningu umfram það. Einhver gæti haldið að þetta væri minni háttar en hlutdeild ríkisins í vergri landsframleiðslu jókst til samanburðar um 2% frá árinu 2019–2025 og við hefðum betur haft þá reglu á því tímabili. Það hefur verið markmið þessarar ríkisstjórnar að snúa við rekstri ríkisins og tryggja að við getum greitt niður skuldir. Það höfum við svo sannarlega gert á þessu ári. Til þess að halda þeirri vegferð áfram þurfum við að ná jafnvægi í rekstri ríkissjóðs. Við getum ekki sent (Forseti hringir.) reikninginn fyrir lífskjörum inn í framtíðina en við þurfum á sama tíma að vinna á skuldum í innviðum, í þjónustu við börn og í heilbrigðiskerfinu. Þetta er góður dagur fyrir Ísland.