157. löggjafarþing — 53. fundur,  18. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:02]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Fjárlögin sem við greiðum atkvæði um í dag eru skynsamleg og ábyrg fjárlög sem taka á innviðaskuld, fjárlög sem efla grunnþjónustu, fjárlög sem eru innan ramma fjármálastefnu, fjárlög sem eru innan fjármálaáætlunar, fjárlög sem eru innan stöðugleikareglu og fjárlög sem tala inn í langtímastöðugleika. Ég vil nota tækifærið og óska ríkisstjórn Flokks fólksins, Viðreisnar og Samfylkingar innilega til hamingju með sín fyrstu fjárlög. Ég vil einnig nota tækifærið og þakka nefndarmönnum fjárlaganefndar, bæði í meiri og minni hluta, fyrir ákaflega gott samstarf og góða vinnu og enn og aftur óska þingheimi öllum og ríkisstjórn okkar innilega til hamingju með daginn.