157. löggjafarþing — 53. fundur,  18. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:06]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Nú lýkur formlega hveitibrauðsdögum ríkisstjórnarinnar. Við erum að samþykkja fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar. Nú reynir á. Það er boðuð útgjaldahækkun upp á 143 milljarða, um 9%, í þessum fjárlögum. Nýir skattar, tæplega 30 milljarðar. Vörugjald á bíla hækkað um 7,5 milljarða. Kílómetragjöld um 3,3 milljarða. Samsköttun hjóna og sambúðaraðila er felld niður. Fjármagnsskattur á húsaleigu er hækkaður um 50%. Þetta eru gríðarlegar skattahækkanir, þetta eru gríðarlegar útgjaldahækkanir en ég vona svo sannarlega, þjóðarinnar vegna, í baráttu við vexti og verðbólgu, að þær reynist vel. En ég hef miklar efasemdir um að svo verði miðað við það sem sett er á borð og meiri hlutinn ætlar að fara að (Forseti hringir.) samþykkja hér í dag. En ég þakka samstarfið í fjárlaganefnd.