fjárlög 2026.
Frú forseti. Það má heita undantekningarlaust að stjórnarandstaða gagnrýni fjárlög og að stjórnarmeirihluti verji fjárlögin sín og telji þau ein hin bestu sem lengi hafi sést. En sjaldan ef nokkurn tímann hefur þó stjórnarmeirihluti þurft að ferðast eins langt frá raunveruleikanum til að verja eigin fjárlög og við horfum upp á núna. Staðreyndin er sú að útgjöld eru að aukast gríðarlega milli ára. Útgjöld íslenska ríkisins hafa aldrei verið neitt í líkingu eins mikil og þau verða á næsta ári. Og skattar og gjöld á almenning á Íslandi hafa aldrei verið eins mikil og á næsta ári. Það er afrakstur fyrsta árs þessarar ríkisstjórnar sem með framlagningu þessara fjárlaga, skattahækkana og útgjaldavaxtar, staðfestir að ekki stendur til að standa á nokkurn hátt við kosningafyrirheit þeirra flokka sem mynda þessa ríkisstjórn.