157. löggjafarþing — 53. fundur,  18. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:08]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þetta er ánægjuleg stund. Í augsýn er langþráð markmið um jafnvægi á milli tekna og gjalda ríkisins og það er gríðarlega mikilvægt. Við ætlum nefnilega að hætta að taka lífskjörin okkar að láni með tilheyrandi vaxandi hallarekstri eins og við höfum þekkt. Og við ætlum að hætta að lifa á yfirdrætti þar sem við sendum kostnaðinn, þar sem við sendum reikninginn, á komandi kynslóðir með vöxtum. Og talandi um vexti: Við ætlum að halda áfram á þeirri vegferð okkar að ná verðbólgunni niður sem er forsenda þess að halda áfram að ná vöxtum á Íslandi niður. Það er mesta réttlætismálið. Það er mesta kjarabótin. Þetta er ánægjuleg stund og ég segi já.