157. löggjafarþing — 53. fundur,  18. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:10]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér eru greidd atkvæði um fjárlög. Samhenta verkstjórnin gat ekki komið sér saman um eina einustu hagræðingu og fór því dýpra í vasa skattgreiðenda með því að hækka alla mögulega skatta og gefa því öll þau nöfn sem til eru. Í nauðvörn sinni hófu hæstv. fjármálaráðherra og hv. þingmenn Viðreisnar að fjalla um gamlar skattalækkanir til að reyna að finna eitthvað jákvætt, útrunnar skattalækkanir. En hvað um það, þetta er fjármagnað með skattahækkunum. Ég legg það því til við útgefendur Tekjublaðsins að þeir gefi út nýtt blað af þessu tilefni þar sem er mynd af öllum stjórnarþingmönnum sem skattakóngum ársins.