fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég fagna þessum fjárlögum sem einkennast af ábyrgum ríkisrekstri og gera okkur kleift að leggja fram hallalaus fjárlög á næsta ári. Þegar ég var forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, reyndi ég að aðstoða þáverandi fjármálaráðherra með hallann á ríkisrekstri og gaf honum til þess hallamál. Ég hlakka til næsta árs þegar hæstv. fjármálaráðherra, Daði Már Kristófersson, getur fært mér þetta hallamál til baka, enda hefur hann sýnt með þessum fjárlögum að ábyrg ríkisfjármál eru sumum auðveldari en öðrum. Hallalaus fjárlög og stöðvun skuldasöfnunar seinustu ríkisstjórnar er stærsta hagsmunamál og kjaramál minnar kynslóðar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)