fjárlög 2026.
Frú forseti. Það er auðvitað þannig að það eru skiptar skoðanir um fjárlög ríkisstjórnarinnar. Stjórnarandstaðan er ekkert endilega sátt við allt sem er í þeim og stjórnarliðar telja sig vera að gera rétt. Þannig hefur þetta sjálfsagt verið í gegnum alla þingsöguna. Ég var sjálfur í stjórnarandstöðu á síðasta tímabili og reyndi að gera mitt besta til að veita þáverandi ríkisstjórn aðhald. Ég benti mjög oft á, og það gerðum við í Viðreisn alloft, að það gengi ekki upp að ríkissjóður væri að borga meira en 100 milljarða á ári í vaxtagjöld, 100 milljarða sem hefðu getað farið í velferð. Ríkissjóður var ósjálfbær fyrir Covid. Núna er verið að lækka skuldir ríkisins. Með því er verið að lækka vaxtagjöld ríkisins. Með því er verið að byggja grunn undir það að hér geti vextir og verðbólga lækkað til þess að velferð í landinu verði meiri og sterkari. Þessi fjárlög eru góður grunnur undir það.