fjárlög 2026.
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Í dag er eiginlega akkúrat ár síðan ný afkomuspá birtist frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem því var spáð að ríkið yrði rekið með viðstöðulausum halla næstu fimm árin. Tekjurnar yrðu lægri en gert hefði verið ráð fyrir og vaxtagjöld miklu hærri. Þannig var staðan þegar þessi ríkisstjórn tók við. Hvað hefur svo gerst? Við höfum lögfest stöðugleikareglu, við höfum lækkað ríkisskuldir um 7,5% af vergri landsframleiðslu. Við höfum samþykkt fjármálaáætlun um að ná niður hallarekstrinum miklu hraðar en fyrri ríkisstjórn ætlaði sér, fólkið sem kvartar og kveinar hér yfir því þegar við erum að bæta afkomu ríkisins. Þetta þýðir að á næsta ári verða í fyrsta skipti í tíu ár lögð fram hallalaus fjárlög. Auðvitað hefur þetta allt saman áhrif á væntingar í samfélaginu, áhrif á traust til hagstjórnarinnar. Það er ekki tilviljun að verðbólga fer lækkandi, að vaxtastigið fer lækkandi og sú þróun mun halda áfram ef við höldum okkar striki, ef við látum vera að hlusta á úrtöluraddirnar hérna (Forseti hringir.) sem kveina yfir því þegar við bætum afkomu ríkisins, sem kveina yfir því þegar við tökum erfiðar ákvarðanir. (Forseti hringir.) Vextir munu halda áfram að lækka. Verðbólgan mun halda áfram að lækka ef við höldum áfram að vinna samkvæmt planinu.