157. löggjafarþing — 53. fundur,  18. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:19]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnarplanið með verðbólgusleggjuna hefur breyst í skattasleggju. Nú aukast ríkisútgjöld milli ára um 9%, um 143 milljarða. Til að fjármagna það eru 30 milljarða viðbótargjöld og -skattar settir á. Afleiðingin að mati margra er að verðbólga muni hækka um 1% og verðtryggðar skuldir heimilanna um 20 milljarða. Aðrar afleiðingar verða minni umsvif fyrirtækja, minni einkaneysla almennings vegna þess að gjalda- og skattahækkanir hafa áhrif á peningaveskið. Allt þetta hefur síðan þær afleiðingar að tekjuáætlun ríkisstjórnarinnar mun ekki standast. Útgjöldin munu sannarlega gera það. Niðurstaðan verður að 28 milljarða halli næsta árs verður meiri, hversu mikið veit nú enginn. En það er líka rétt að benda á það að þessi halli er á pari við árið 2025, því að hann er 38. (Forseti hringir.) Þannig tók ríkisstjórnin við. Hún fékk 80 milljarða viðbótartekjur eftir þetta hræðilega plan sem orkumálaráðherrann var að lýsa hérna áðan, 80 milljarða í auknar tekjur.