157. löggjafarþing — 53. fundur,  18. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:20]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Sýndu mér vini þína og ég skal segja hvernig maður þú ert. Sýndu mér svo fjárlögin þín og ég skal segja hvernig ríkisstjórn þú ert. Þessi fjárlög sýna okkur hvernig þessi ríkisstjórn er. Hún hefur sýnt á spilin. Hún hefur sent jólagjöf til þjóðarinnar sem er ekkert nema skattahækkanir. Hér kemur hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og segir: Það er ekki tilviljun að verðbólga hefur lækkað. Nei, það er ekki tilviljun. Það er ekki tilviljun vegna þess að þessi ríkisstjórn hefur hingað til unnið eftir fjárlögum fyrri ríkisstjórnar. Það er nú öll sagan og við skulum halda henni til haga. Við skulum vera minnug þess að þegar forystukonur þessarar ríkisstjórnar voru í viðræðum í desember í fyrra þurftu þær að gera hlé á þeim vegna þess að þær treystu sér varla í verkefnið, vegna þess að staðan var svo miklu verri. Hún var svo miklu verri heldur en þær höfðu gert ráð fyrir. (Forseti hringir.) Það þurfti fleiri minnisblöð, það þurfti fleiri ráðgjafa úr ráðuneytum. Og hver var niðurstaðan? 80 milljarða meðgjöf (Forseti hringir.) sem þær fara með í 143 milljarða útgjaldaauka. Ég segi við þjóðina: Spennið beltin.