fjárlög 2026.
Frú forseti. Það er margt hægt að segja um þessi fjárlög og ég ætla ekki að nota þessa mínútu í það. En ég verð þó að fá að segja það um þessa atkvæðagreiðslu að þegar hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kemur upp og vísar í plagg um það hversu slæm staðan hafi verið, og ég man eftir fréttum um að hæstv. ríkisstjórn þyrfti lengri tíma til að skrifa stjórnarsáttmála vegna þess hversu afleit staðan væri, þá kom nú fljótlega í ljós að það munaði 80.000 milljónum, 80 milljörðum, frá því sem þá var gefið út og sem síðar varð raunin án þess að hæstv. ríkisstjórn gerði nokkuð í því. Það er því mjög ómaklegt að koma upp og tala eins og að árangur ríkisstjórnarinnar sé þessi, þegar það munaði 80 milljörðum án þess að hæstv. ríkisstjórnin hefði eitthvað haft með það að gera. Ég vona hins vegar að verðbólgan minnki, því hún lækkar ekki, hún minnkar, ég bendi góðfúslega á það, og að vextir lækki. Ég vona líka að það standist að fjárlögin verði hallalaus en það er margt sem á eftir að koma til (Forseti hringir.) og það er ekki hægt að ná þeim halla niður eingöngu með því að hækka endalaust alla mögulega skatta, með nýyrðum — sem þó eru gott merki fyrir íslenska tungu — yfir það sem er í eðli sínu skattahækkanir.