fjárlög 2026.
Frú forseti. Þann 21. desember fyrir réttu ári síðan þá eignuðumst við nýja ríkisstjórn og ég er stolt af því að fá að sitja í þjóðarskútunni í stafni með okkar frábæru samstarfsflokkum. Ég er stolt af þessum fjárlögum sem einkennast líka meira og minna af velferð gagnvart því fólki sem þarf á hjálp þessarar ríkisstjórnar að halda. Við erum stolt af því að taka utan um okkar minnstu bræður og systur, sem sést hvívetna í þessum fjárlögum og við erum búin að sýna það hér í atkvæðagreiðslum og málum þar sem við höfum greitt götuna fyrir þjóðina okkar í dag. Ég segi: Kæra þjóð, þið báðuð um breytingar, þið fenguð breytingar. Þið hafið staðið með okkur í stafni, þið hafið sent okkur styrk, djörfung og dug og við munum standa undir því. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól.