jólakveðjur.
Hv. alþingismenn. Komið er að lokum haustþings á 157. löggjafarþingi og brátt hefst hefðbundið þinghlé að vetri. Næsti þingfundur Alþingis verður á nýju ári miðvikudaginn 14. janúar en þingnefndir hefja störf mánudaginn 12. janúar. Ég þakka varaforsetum þingsins samstarfið við skipulag og framkvæmd þinghaldsins, einnig formönnum þingflokka og stjórnmálaflokka sem og starfsfólki skrifstofu Alþingis og auðvitað hverju og einu ykkar, hv. þingmenn.
Árið 1844, fyrir rúmum 180 árum, fóru fram fyrstu alþingiskosningarnar á Íslandi. Aðeins lítill hluti landsmanna, líklega einungis rúm 2% þeirra, hafði kosningarrétt og þingið sem kosið var til hafði ekki löggjafarvald. Þótt bæði kosningaréttur og kjörgengi væri miklum takmörkunum háð árið 1844 og engin kona ætti þess kost að greiða atkvæði í þingkosningunum eða bjóða sig fram til starfa á Alþingi fólust tímamót í þessum þingkosningum. Í fyrsta sinn gerðist það að Íslendingar völdu fulltrúa úr sínum röðum til að starfa í þágu samfélagsins alls.
Árið í ár er mikilvægt ár í sögu kvenréttindabaráttu á Íslandi. Eins og allir hér inni vita eru 110 ár liðin frá því að konur fengu kosningarrétt árið 1915 og frá árinu 1934 hefur kosningarréttur verið jafn án takmarkana vegna efnahags, kynferðis eða stéttarstöðu og kjörsókn í þingkosningunum er góð alla jafna. Sú breyting hefur leitt til betri hátta, öflugra og sanngjarnara samfélags þar sem fólk fær notið sín eins og það er og á eigin forsendum og getur nýtt krafta sína til góðra verka.
Á þessu ári er þess einnig minnst að 50 ár eru liðin frá fyrsta kvennafrídeginum 24. október 1975, þar sem konur úr öllum stéttum og stigum og af öllu landinu tóku sig saman og lögðu niður störf í þágu baráttu fyrir jafnrétti og betra samfélagi fyrir komandi kynslóðir. Til að minnast þessara tímamóta og kvennaársins hafa verið haldnir ýmsir viðburðir um land allt. Af því tilefni gaf Alþingi út spilastokka með öllum konum sem kjörnar hafa verið á Alþingi síðan Ingibjörg H. Bjarnason var kjörin fyrst kvenna árið 1922. Þá var einnig haldið opið hús á Alþingi og almenningi boðið að fá leiðsögn um húsakynni þingsins og í fyrsta skipti var boðið upp á slíkar leiðsagnir á táknmáli og einnig á pólsku núna í haust.
Það má með sanni segja um þá þróun í átt til lýðræðis og jafnréttis sem íslenskt samfélag hefur notið góðs af um langt skeið að okkur hefur vissulega miðað fram á við og erum framarlega í flokki á alþjóðavísu. Þar á Alþingi stóran hlut að máli sem löggjafi samfélagsins sem í senn mótar reglur þess og skyldar okkur öll til að hlíta þeim. Við þingmenn erum sérstaklega skuldbundin Alþingi og starfsemi þess. Kjósendur hafa trúað okkur fyrir því meðan kjörtímabilið varir. Það er á ábyrgð okkar allra að sjá til þess að þingið sé starfhæft og að reglur um starfsemi þess séu virtar þannig að það gegni hlutverki sínu. Það er fyrir öllu.
Hér hafa eins og endranær verið annir síðustu daga og þingið hefur afgreitt fjárlög næsta árs svo og frumvörp um breytingar á ýmsum lögum sem tengjast fjárlagaafgreiðslunni auk margra annarra mála sem áður höfðu hlotið afgreiðslu. Í þingmálaskrá vetrarins var gert ráð fyrir framlagningu 111 mála fyrir áramót og 88 þeirra hafa verið lögð fram. Mál hafa komið jafnt og þétt til þings sem skiptir máli fyrir vandaða þinglega meðferð og gæði lagasetningar. Samþykkt hafa verið 37 lög og 5 ályktanir.
Þegar litið er yfir störf þessa haustþings má segja að þau hafi gengið vel og ég vil þakka öllum hv. alþingismönnum fyrir þeirra þátt í því.
Hv. þingmenn. Alþingi á sér langa sögu, allt aftur til ársins 930 að það var stofnað á Þingvöllum við Öxará, þing sem hafði lögsögu um allt land. Árið 2030 verða liðin 1100 ár frá þessum merkisatburði. Á fullveldisdeginum núna 1. desember síðastliðinn hófst hugmyndasöfnun meðal almennings um það hvernig sé best að minnast þessara tímamóta árið 2030. Ég hvet ykkur, hv. þingmenn, að leggja ykkar af mörkum í þeirri hugmyndasöfnun og skella inn góðri hugmynd fyrir 16. janúar næstkomandi.
Hv. alþingismenn. Ég óska ykkur, starfsfólki skrifstofu Alþingis og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og allra heilla á nýju ári. Ég bið öllum sem héðan fara af þinginu góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og hlakka til endurfundar við ykkur þegar þinghald hefst aftur í janúar.