jólakveðjur.
Virðulegur forseti. Allt hefur sinn tíma og þótt predikarinn sem á það benti hafi vísað til stærstu viðburða í lífi okkar allra þá minna þessi sannindi okkur á að þau eiga einmitt við um jafn forgengilega hluti og dagskrá þingsins er. Nú rennur haustþing þessa löggjafarþings sitt skeið og vil ég fyrir hönd okkar þingmanna færa forseta og varaforsetum þakkir fyrir samstarfið í vetur.
Þingstörfin hafa verið fyrirsjáanleg í flesta staði. Bæði ríkisstjórn og stjórnarandstaða hafa lagt fram fjölda þingmála og í þeirri málstofu sem Alþingi er er eðlilegt að margir kalli eftir orðinu. Til að þingstörfin gangi greiðlega þarf sterka verkstjórn. Þingmenn hafa almennt þykkan skráp í því orðaskaki sem stjórnmálunum fylgir. Það á líka við hér í þingsal og það er viðbúið að sá sem stýrir dagskrá hverju sinni beri þess merki. Falli þung orð í hita leiksins þá fennir yfir þau svo lengi sem forseti er hlutlaus í störfum sínum og þar með forseti þingsins alls.
Ég þakka forseta hlý orð í garð þingmanna hér áðan og ég þakka forseta gott samstarf um lyktir þessa haustþings. Starfsfólki þingsins þakka ég sérstaklega vel unnin störf og þolinmæði í garð okkar þingmanna.
Um leið og ég óska forseta, varaforseta og starfsfólki gleðilegra jóla ítreka ég þakkir okkar þingmanna til þeirra og bið þingheim um að taka undir þakkir mínar með því að rísa úr sætum. [Þingmenn risu úr sætum.]