Framhaldsfundir Alþingis.
Gefið hefur verið út svohljóðandi bréf sem ég hyggst lesa í fjarveru hæstv. forsætisráðherra:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hef ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda miðvikudaginn 14. janúar 2026 kl. 15.00.
Gjört á Bessastöðum, 11. janúar 2026.
Halla Tómasdóttir.
___________________
Kristrún Frostadóttir.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Ég vil nota tækifærið og bjóða hæstv. forseta og hv. þingmenn velkomna til þingfundastarfa nú á nýju ári.